
Morgunverkin
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Morgunverkin fengu í póstkassann send tvö hljóðbrot úr viðtali Ólafs Páls úr Rokklandi við hljómborðsleikara Foo Fighters sem munu heimsækja Ísland í fjórða sinn næsta sumar. Sá heitir Rami Jaffee og við heyrðum af því hvernig hann lýsir Dave Grohl og ræddi hann aukinheldur um Brennvín, Bláa lónið og pylsu með öllu.
Við drógum venjubundið fram dagbækurnar og þar komu m.a. við sögu Britney Spears, hljómsveitin gamla og góða Slade, Emmsjé Gauti og Jeff Buckley.
Jú, við einblíndum ögn á hinn síðastnefnda, tónlistarmanninn Jeff Buckley sem hefði orðið sextugur í dag. Hann var fæddur þennan dag árið 1966, gaf einungis út eina hljóðversplötu og lést svo sviplega 1997. Tónlistarkonan Erla Stefánsdóttir þekkir einkar vel til kauða og ræddi við okkur um hvað það væri mögulega sem við hrífumst svona að í fari þessa dáða söngvara.
MAGNÚS ÞÓR, JÓNAS SIGURÐSSON - Ef ég gæti hugsana minna BLAZROCA OG ÁSGEIR TRAUSTI - Hvítir skór
TATJANA - Loforð
GEORGE MICHAEL - Faith
CEASETONE - Lagið um skerið
EMMSJÉ GAUTI - Nýju fötin keisarans
BEASTIE BOYS - Get it together
SPACESTATION - Watching it happen
FORMAIKA - King of soul
FOO FIGHTERS - My hero
FOO FIGHTERS - Times Like These [Acoustic Version]
TÁR - Isn't Life a Bitch
SPECIALS - A Message To You Rudy
JUSTICE - Flower In A Hurricane (ásamt Tame Impala, SZA, King Gizzard & the Lizard Wizard)
LLOYD COLE AND THE COMMOTIONS - Lost Weekend
BRITNEY SPEARS - Oops... I did it again
WASABI - Hide
ELVAR - Miklu betri einn
FONTAINES D.C. - Japan
JEFF BUCKLEY - Last Goodbye
JEFF BUCKLEY - Hallelujah
JEFF BUCKLEY - Lover you should've come over
ZACH BRYAN - Lies (ásamt Lana Del Rey)
KENT - Music Non Stop
CHAKA KHAN, SNOOP DOGG - Boogie's in My Soul
SLADE - Cum On Feel The Noize
DUSTY SPRINGFIELD - Son Of A Preacher Man
LANGI SELI OG SKUGGARNIR - Breiðholtsbúgí
KARLOTTA - Falskar vonir (ásamt Helga Sæmundi)
RED HOT CHILI PEPPERS - Give It Away
TOVE LO, STROMAE - Des Fleurs x Stromae

Létt spjall og lögin við vinnuna.