Loftslagsþerapían - Hlaðvarp

Leyft öllum aldurshópum

Ég, amma og staðan í dag

Í fyrsta þætti Loftslagsþerapíunnar horfir þáttastjórnandi í tilvistarkreppu til fortíðar og framtíðar.

Í fyrri hluta þáttarins er saga loftslagsumræðunnar rakin í stórum dráttum og sett í samhengi við líf okkar sem lifum í dag.

Í síðari hluta hans er rætt við vísindamenn um stöðuna, hversu alvarleg hún er í raun og hvers vegna vísindamenn vilja ekki hugsa um áhrif fjögurra eða fimm gráðu hlýnunnar.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Loftslagsþerapían - Hlaðvarp

Í Loftslagsþerapíunni eru snertifletir loftslagsógnarinnar skoðaðir í sambandi við allt það mannlega. Við tölum um óttann, afneitunina og skömmina, grátum kannski smá en hlæjum líka. Við tölum við siðfræðinga, sálfræðinga, pólitíkusa, presta, vísindamenn og venjulegt fólk. Við horfumst í augu við staðreyndir en látum okkur líka dreyma, reynum að leggja loft-slagsmálin á hilluna og hugsum í lausnum, því það er ekkert annað í stöðunni en að reyna að redda þessu saman. Þetta verður tilfinningarússíbani. Komdu með.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir.

Þættir

,