Loftslagsdæmið

Leyft öllum aldurshópum

Þáttur 1

Í þessum fyrsta þætti heimsækjum við tvær af þeim fjórum fjölskyldum sem taka þátt í Loftslagsdæminu. Önnur býr í Reykjavík, hin á Akureyri. Með Arnhildi í för eru Stefán Gíslason og Birna Hallsdóttir, sérfræðingar hjá ráðgjafarfyrirtækinu Environice. Þau skoða neyslu fjölskyldnanna og ofan í kjölinn og ræða meðal annars um hraðtískurisa, sódastrímtæki og taubleyjur.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Loftslagsdæmið

Fjórar ólíkar fjölskyldur skora vanann á hólm og breyta lífi sínu með það að markmiði að minnka kolefnisspor heimilisins um fjórðung. Þær njóta handleiðslu sérfræðinga, leita svara við spurningum sem kvikna og tjá sig opinskátt um reynslu sína.

Í Loftslagsdæminu er fjallað um þau margslungnu áhrif sem lífsstíll okkar hefur á loftslagið og þau áhrif sem loftslagsváin hefur á okkur. Við köfum ofan í fyrirbærið kolefnisspor og fáum á hreint hvaða þættir mynda kolefnisspor íslenskra heimila. Við lítum til framtíðar og spyrjum:

Hvað getur venjulegt fólk gert til að forða mannkyninu frá alvarlegustu afleiðingum loftslagsbreytinga? Hvað þarf að breytast svo að almenningur geti lifað loftslagsvænna lífi?

Verkefnið er samstarfsverkefni Rásar 1, ráðgjafarfyrirtækisins Environice og Arnhildar Hálfdánardóttur, frétta- og dagskrárgerðarmanns. Það stóð yfir í tvo mánuði, frá 15. september til 30. nóvember 2020 og var styrkt af Loftslagssjóði.

Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir.

Þættir

,