Í upphafi var myndin

1. Dæmd í vændishús

Rakin er saga hótelstjóradóttur sem fæddist í Hafnarstrætinu í Reykjavík. Á unglingsárum sigldi hún til Kaupmannahafnar og lenti þar á refilstigum í strætum sem mörgum þóttu býsna vafasöm. Frá Danmörku flakkaði hún til fleiri landa, tókst á við leynilegt verkefni og komst ítrekað í kast við lögin. Viðmælandi í þættinum er Kristín Svava Tómasdóttir, sagnfræðingur.

Birt

25. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Í upphafi var myndin

Gömlu Grikkirnir kölluðu það ekfrasis þegar raunverulegu listaverki var lýst með orðum. Í Ilíonskviðu Hómers er skildi Akkilesar lýst í ljóði og rithöfundar hafa í þúsundir ára skrifað óteljandi texta sem lýsa eða túlka merkingu listaverka. Í þessari þáttaröð notar Þórdís Gísladóttir svipaða aðferð og segir frá fjórum myndum sem urðu til þess hún heimsótti fólk og skjalasöfn og sökkti sér í heimildir um manneskjur sem hún hafði ýmist aldrei heyrt um eða vissi mjög lítil deili á. Myndirnar urðu kveikjan því hún raðaði saman fjölmörgum brotum úr fortíðinni og segir í þáttaröðinni Í upphafi var myndin sögur nokkurra Íslendinga sem fluttu til Danmerkur og Dana sem fluttu til Íslands. Allt lifði þetta fólk forvitnilegu lífi með gleði og sorgum, ævintýrum og leyndarmálum.

Umsjón: Þórdís Gísladóttir

,