Sjötti þáttur: Ferðalag Hafmeyjunnar og nýjar upplýsingar
Í þessum síðasta þætti skoðum við ferðir Hafmeyjunnar eftir sprenginguna, en það ferðalag leiðir okkur í Kópavog, á Hvolfsvöll, vestur á firði og svo aftur heim, til Texas. En við…
Saga Nínu sem ólst upp í torfbæ, braust til mennta í Kaupmannahöfn og hélt svo til Parísar, Rómar, New York og Hollywood. Hvar staðsetjum við Nínu í listasögunni og afhverju þótti hún gamaldags þegar hún sneri aftur heim?
Viðmælendur: Æsa Sigurjónsdóttir og Margrét Elísabet Ólafsdóttir.

Hvernig rataði Hafmeyja Nínu Sæmundsson í Tjörnina í Reykjavík? Og hvað varð til þess að hún var sprengd í loft upp? Var glæpurinn fagurfræðilegur eða pólitískur? Var þetta hatursglæpur eða hrein skemmdarfýsn? Og hvernig tengjast módernistar, þjóðernissinnar, Hollywood og heitar ástir ráðgátunni? Í þessari sex þátta seríu kafar Halla Harðardóttir í best geymda leyndarmál íslenskrar listasögu, skoðar söguna í nýju ljósi og miðlar spennandi tilgátum.