
Hjartans mál
Ólöf Gerður Sigfúsdóttir leggur upp í leiðangur um hjartað sem líffæri og menningarsögulegt fyrirbæri eftir að hafa sjálf upplifað skyndileg hjartveikindi. Hún rekur táknræna merkingu hjartans frá fornu fari til samtímans og fær til sín fjölmarga viðmælendur til að varpa ljósi á ólíkar birtingarmyndir hjartans, sem hún fléttar saman við eigin reynslu.