Fyrst á fætur
Hulda Geirsdóttir er fyrst á fætur á sunnudagsmorgnum á Rás 2. Hún heyrir í fólki víða um land, fær til sín góða gesti og leikur fjölbreytta tónlist að sínum hætti. Notaleg morgunstund með hlustendum.
Hulda lét veðurhaminn ekki stoppa sig og kom sér fyrir í huggulegri stemmingu í hljóðveri. Sveitasíminn hringdi á Efri-Fossi í Hrútafirði þar sem Kristín Helga Ármannsdóttir býr og framleiðir íslenskt matarhandverk undir vörumerkinu Sauðfjárbúið.
Gestur þáttarins var kynlífsráðgjafinn Áslaug Kristjánsdóttir sem venti kvæði sínu í kross og ákvað að leggja fyrir sig skriftir. Hennar fyrsta skáldsaga „Gerðu eins og ég segi" kom út fyrir skemmstu og hún dembir sér nú út í jólabókaflóðið.
Lagalisti:
Björgvin Halldórsson - Skýið.
Sade - By Your Side.
Bubbi Morthens - Korter í jól.
Fleet Foxes - White Winter Hymnal.
Phil Collins - I Wish It Would Rain Down.
Nýdönsk - Á plánetunni jörð.
Kacey Musgraves - Weekend In Texas.
Richard Hawley - Open up your door.
Árný Margrét - In a dream.
Malen - Ready Now.
The LA's - There she goes.
A-Ha - I've been losing you.