10. MARKMIÐASETNING, SEIGLA, ÁRANGUR OG DRAUMALÍFIÐ
(„Eitthvað sem við stefnum á“)
Námsefnið Eitt líf er ætlað efstu bekkjum grunnskólans. Um er að ræða efni í lífsleikni með forvarnargildi gegn áhættuhegðun. Í efninu er farið yfir ýmsa verndandi þætti með fræðslu, umræðum og verkefnum. Grunnskólanemendur ræða við sérfræðinga um geðheilbrigði, sjálfsmynd, svefn, heilbrigð bjargráð til að takast á við kvíða og reiði, að setja heilbrigð mörk, seiglu og fleira.
Efnið samanstendur af dagbók, hlaðvörpum og kennsluleiðbeiningum og er samvinnuverkefni á milli Menntamálastofnunar, RÚV og Minningarsjóðs Einars Darra (Eitt líf). Sjá nánar á mms.is
Þáttastjórnendur: Bjartur Einarsson og Helga Lilja Maack.