Balkanbræður

3. Stríðið

Fótboltamennirnir sem komu til Íslands frá gömlu Júgóslavíu árið 1992 og næstu ár á eftir voru flestir flýja stríð sem geysuðu í heimalandi þeirra á meðan Júgóslavía var liðast í sundur. Margir þeirra komu frá Bosníu, en í Bosníustríðinu sem hófst árið 1992 var gríðarlegt mannfall. Í þessum þætti er stríðið til umfjöllunar og Balkanbræður segja frá sinni upplifun af hörmungunum sem hefur markað þá fyrir lífstíð. Rætt er við Goran Kristófer Micic, Luka Lúkas Kostic, Val Ingimundarson, Izudin Daða Dervic, Ejub Purisevic, Milan Stefán Jankovic, Zoran Daniel Ljubicic og Salih Heimi Porca.

Frumflutt

24. jan. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Balkanbræður

Í þáttaröðinni fjallar Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður um fyrstu fótboltamennina frá gömlu Júgóslavíu sem komu til Íslands á árunum 1989-1992 til spila fótbolta og settust svo hér að. Framleiðandi: Þorgerður E. Sigurðardóttir. Hljóðmynd: Jón Þór Helgason.

Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson

Þættir

,