Allir í leik

Einn fíll lagði af stað í leiðangur

Þáttur um íslenska leikjasöngva.

Fjallað er um hreyfisöngva og leiki skylda þeim: „Höfuð herðar hné og tær“, „Það búa litlir dvergar“, „Einn fíll lagði af stað í leiðangur“. Einnig verða fluttar hljóðritanir af grænlenskum leikjasöngvum, svo sem hreyfisöngnum „Nigeriarannguaq“.

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.

Frumflutt

18. ágúst 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Allir í leik

Allir í leik

Allir í leik er þáttaröð í umsjón Unu Margrétar Jónsdóttur um íslenska leikjasöngva, gamla og nýja. Umsjónarmaður hefur rannsakað viðfangsefnið undanfarin ár og komið í barnaskóla víða á landinu til þess hljóðrita leiki með söngvum. Einnig hefur verið rætt við eldra fólk um leiki sem það man eftir. Í fyrsta þættinum verður fjallað um leikinn „Fram, fram fylking" og fleiri leikjasöngva sem hafa verið vinsælir í frímínútum og á leikvöllum. Þá hafa verið hljóðritaðir leikjasöngvar í Færeyjum og á Grænlandi og fékk umsjónarmaður til þess styrki frá Sumargjafasjóði og Grænlandssjóði. Þær hljóðritanir verða einnig fluttar í þáttunum.

Þættir

,