Aldrei las ég Laxness

Atómstöðin

Atómstöðin kom út á mánudegi, 22. mars árið 1948 - en hennar var beðið með svo mikilli eftirvæntingu að upplagið seldist upp, samdægurs. Bókin er skrifuð beint inn í samfélagsumræðu síns tíma og snertir hún á umdeildum umræðum um inngöngu Íslands í Nató sem og á flutningi beina Jónasar Hallgrímssonar til Íslands um svipað leyti. Halldór tjáði sig sjálfur um bókina í Þjóðviljanum og segir hana „innlegg í pólitískt hitamál og kannski viss(a) gagnrýni á losarabrag og siðferðisbrest í kjölfar styrjaldarinnar“.

Söguþráður Atómstöðvarinnar hverfist um stúlkuna Uglu sem kemur að norðan til Reykjavíkur að læra á orgel. Hún ræður sig í vist á yfirstéttarheimili hjá þingmanninum og heildsalanum Búa Árland. Hún lærir hjá Organista sem er mikill módernisti og heldur eins konar kommúnu í Reykjavík og laumast á sellufund kommúnisma - svo fátt eitt sé nefnt.

Gestur Aldrei las ég Laxness að þessu sinni er Silja Sóley Birgisdóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins.

Grafík: Silvía Sif Ólafsdóttir

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Aldrei las ég Laxness

Klúbburinn Aldrei las ég Laxness er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér nóbelskáldið, þau sem hafa jafnvel aldrei lesið hann, eða bara krukkað í þessari gamalkunnu menntaskólaskyldu, og/eða öll þau sem hafa áhuga á skáldskap Kiljans.

Þættir

,