18:00
Kvöldfréttir útvarps
Hótanir gegn ráðamönnum, Bandaríkjaforseti um handtökur við breska herstöð og Fagnar frumvarpi um samfélagsmiðla.

Fréttir

Fréttir

Hótanir í garð ráðamanna eru ógn við lýðræðið og hafa færst í aukana síðustu ár, segir yfirmaður greiningardeildar ríkislögreglustjóra. Sérsveitarmaður fylgdi utanríkisráðherra í Reykjavíkurmaraþoninu vegna alvarlegra hótana.

Breska lögreglan hefur handtekið fimm menn sem grunaðir eru um undirbúning hryðjuverka nærri herstöð í Bretlandi. Bandaríkjaforseti segir bandarísk yfirvöld hafa haft fimmmenningana til rannsóknar í lengri tíma.

Sérfræðingur segir frumvarp mennta- og barnamálaráðherra um aðgang barna að samfélagsmiðlum geta hjálpað foreldrum með skýrum félagslegum viðmiðum.

Suðrænir flækingsfuglar eru æ tíðari gestir á Íslandi vegna hlýnandi loftslags, segir fuglafræðingur. Flækingurinn bognefur sást í Vestmannaeyjum um helgina.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 10 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,