16:05
Síðdegisútvarpið
17.mars
Síðdegisútvarpið

Þegar fyrsta hluta úthlutunar leikskólaplássa í Reykjavík lauk föstudaginn 10. maí höfðu foreldrar rúmlega 1700 barna fengið boð og þegið vistun í borgarrekna leikskóla.

Hildur Lilja Jónsdóttir, fagstjóri leikskóla í Austurmiðstöð sem einnig er í innritunarteymi skóla- og frístundasviðs kemur til okkar á eftir og fer yfir stöðuna í þessum málaflokki með okkur.

Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi verður síðan hjá okkur í seinni hluta þáttar á grillinu eins og við höfum kosið að kalla þennan dagskrárlið. Við spyrjum Höllu spjörunum úr og freistum þess að kynnast henni betur.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO telur að akstur vegna farsímanotkunar sé einn stærsti áhættuþáttur umferðarslysa í heiminum.

Allt bendir til þess að fólk sem notar síma við akstur sé fjórum sinnum líklegra til að lenda í slysi. Þá er tuttugu og þrisvar sinnum líklegra að fólk sem les og eða skrifar skilaboð meðan á akstri lendi í slysi. Nú hefur Samgöngustofa í samvinnu við tryggingarfélagið Sjóvá ákveðið að hrinda af stað herferð gegn farsímanotkun sem ber yfirskriftina "EKKI TAKA SKJÁÁHÆTTUNA" Það er hættulegt að tala í síma undir stýri. Gunnar Geir Gunnarsson deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu kemur til okkar.

Íbúar í Ölfusi eru að fara að kjósa samhliða forsetakosninunum um hvort þeir vilji breyti á deiluskipulagi þannig að mölunarverskmiðja Hedelberg geti risið í næsta nágrenni við Þorlákshöfn. Það er búið að boða til íbúðarfundar í kvöld og hingað er komin Ása Berglind Hjálmarsdóttir bæjarfulltrúi í minnihluta bæjarstjórnar Ölfuss.

Þrátt fyrir mikil mótmæli síðustu vikur hefur ríkisstjórn Frakklands ekki gefið upp á bátinn áform um breytingar á kerfinu, en til stendur að hækka eftirlaunaaldur úr 62 í 64 ár.

Hækkun eftirlaunaaldurs hefur verið meðal helstu stefnumála Emmanuels Macrons Frakklandsforseta allt frá því hann bauð sig fyrst fram til forseta árið 2017. Við ætlum að slá á þráðinn til Parísar en þar býr Kristín Jónsdóttir eða Parísardaman eins og hún er oftast kölluð og heyra það nýjasta í stöðunni.

Leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson hefur undanfarið verið við tökur í Róm, Ítalíu. Þar hefur Jóhannes verið að leika sjálfann leikstjórann, leikarann og framleiðandann Orson Welles sem er án efa einn af virtari einstaklingum kvikmyndasögunnar. Vissulega eru leikhæfileikar Jóhannesar miklir en ekki skemmir það fyrir að hann og Orson Welles eru sláandi líkir. Jóhannes segir okkur nánar frá þessu ævintýri á eftir.

Svo virðist vera sem svo að hljómsveitin Jeff Who? Sé eins og almennilegt eldgos, því hún kemur saman á nokkura ára fresti og allt verður vitlaust. Síðast komust töluvert færri fyrir í húsinu en vildu, þau og hinir fá annað tækifæri. Því Jeff Who? ætlar að koma saman og leifa aðdáendum að njóta um helgina og það í Iðnó. Söngvrinn Bjarni Lárus Hall kemur til okkar á eftir.

Við ætlum að heyra í Helgu Margréti Höskuldsdóttur sjónvarsp - og útvarpskonu en hún er stödd í Reykjanesbæ þar sem úrslit Gettu Betur fara fram milli liða Menntaskólans í Reykjavík og Fjölbrautarskóla Suðurlands.

Við ætlum að fá góð ráð varðandi andlega heilsuna okkar og heyra um nokkrar aðferðir sem geta nýst okkur í þeirri vinnu - hingað kemur Helgu Arnardóttur, félags- og heilsusálfræðingur.

Icelanda­ir hef­ur hafið flokk­un á sorpi um borð í flug­vél­um sín­um í milli­landa­flugi. Fé­lagið hef­ur, í sam­starfi við yf­ir­völd og stofn­an­ir á Íslandi, um ára­bil hvatt til þess að reglu­gerðum verði breytt og nú er komið að því. Heiða Njóla Guðbrandsdóttir aðstoðarfram­kvæmda­stjóri rekstr­ar­sviðs Icelanda­ir kemur til okkar.

Var aðgengilegt til 16. mars 2024.
Lengd: 1 klst. 54 mín.
,