Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Séra Guðni Már Harðarson flytur.
Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Um 95 prósent Íslendinga segjast myndu kjósa Joe Biden frekar en Donald Trump. Þessu er talsvert öðruvísi farið í Bandaríkjunum, sem er jú það sem skiptir máli, fólkið sem kemur til með að kjósa um þá í nóvember. Hvað heillar kjósendur við Trump? Hver er staða mála nú þegar tveir mánuðir eru í kosningarnar í Bandaríkjunum og hvaða kjósendur eru þeir Biden og Trump helst að bítast um? Ólafur Þ. Harðarson prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands kom á Morgunvaktina.
Vetrarstarf Sinfóníuhljómsveitar Íslands hefst með látum í kvöld; Sjónvarpstónleikum sveitarinnar og Ríkisútvarpsins.
“Klassíkin okkar“ er yfirskrift hljómleikaraðar sem hóf göngu sína fyrir fjórum árum og í kvöld verður litið yfir sögu Sinfó og Rásar 1 í tali og tónum. Sigrún Eðvaldsdóttir konsertmeistari hinnar sjötugu Sinfóníuhljómsveitar Íslands hefur það náðugt í kvöld, hún á frí, en hún kom í hljóðverið og spjallaði um veturinn fram undan, klassíska tónlist og lífið og tilveruna.
Verulega hefur dregið úr flugi til og frá landinu undanfarið, sérstaklega hjá Icelandair, sem þó ætlar að fljúga þrjár ferðir í dag samkvæmt áætlun. En hvernig ætli ferðalögum okkar verði háttað þegar hlutir komast í betra horf? Flestir sérfræðingar virðast allavega sammála um að frí og heimsóknir til vina og ættingja verði fyrst á dagskrá - og viðskiptaferðalög síðust að taka við sér - ef þau verða þá einhvern tímann eins og var áður. Og það gæti verið ljós í myrkrinu fyrir íslenska ferðaþjónustu, eins og Kristján Sigurjónsson, ritstjóri Túrista, sagði okkur frá því.
Nessun dorma - Elmar Gilbertsson, Fjörulag - Hörður Torfason, Meginstefið úr Schindler?s List - Sigrún Eðvaldsdóttir og Sinfóníuhljómsveit Íslands
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Brynjólfur þór Guðmundsson
Útvarpsfréttir.
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Í þættinum er fjallað um Pólaris-leiðangur bandaríska könnuðarins Charles Francis Hall, sem vildi freista þess að komast fyrstur manna á Norðurpólinn 1871, en lést á leiðinni - á dularfullan hátt.
Umsjón: Halldóra Björnsdóttir.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Svanhildur Jakobsdóttir.
Útvarpsfréttir.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn á einnig stórafmæli í dag, nánar tiltekið er hann 75 ára í dag, Hörður Torfason söngvaskáld og leiksviðslistamaður. Það var um nóg að tala við hann og af nægu að taka. Við fengum að vita hvar hann er fæddur og uppalinn og svo ferðuðumst við í gegnum viðburðarríka ævi hans til dagsins í dag. Við spiluðum glænýtt lag, Draumarnir, og svo sagði Hörður okkur frá nýrri bók, 75 sungnar sögur, sem kom út í sumar.
Í matarspjalli dagsins sagði Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, besti vinur bragðlaukanna, okkur frá kálbögglum, eða bleikum kjötbollum. Hvar á maður að kaupa kjötfarsið? Á maður að búa það til sjálfur? Notar maður sama farsið í steiktar kjötbollur og kálböggla? Og er kominn tími til að halda hátíðlega kjötfarsdaginn einu sinni á ári?
Umsjón: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Áætlað er að Reykjavíkurborg verji einum milljarði meira í fjárhagsaðstoð í ár en gert var ráð fyrir. Sviðsstjóri hjá borginni býst við að þeim fjölgi sem þurfi aðstoð.
Um 50 sentimetra jafnfallinn snjór var á Biskupshálsi í morgun og krapi á fjallvegum. Búist er við vonskuveðri á Norður-, Austur- og Suðausturlandi fram á kvöld.
Slakað verður á samkomutakmörkunum á mánudag. Þá mega mest tvöhundruð koma saman, og eins metra regla tekur við af tveggja metra reglunni
Eldur logar í olíuskipi skammt frá Sri Lanka og er óttast er að alvarleg umhverfisspjöll verði berist eldurinn í geyma skipsins.
Frumvarp um hlutdeildarlán félagsmálaráðherra var samþykkt á Alþingi í gær. Hagfræðingur Landsbankans telur að þetta geti leitt til verðhækkana á fasteignamarkaði.
Sameinuðu þjóðirnar hvetja ríki heims til að styðja hjálparstarf í Jemen, en yfir tuttugu milljónir þurfi þar á aðstoð að halda eftir langvarandi stríðsástand, flóð og aðrar hörmungar. Þá geti kórónuveirufaraldurinn bitnað hart á nauðstöddum.
Dánarfregnir.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Steinþór Skúlason fosrstjóri SS: Sláturhúsin hafa verið í viðbragðsstöðu síðan Covid 19 farsóttin hófst en þau stóla að langmestu leiti á erlent farandverkafólk í sláturtíðinni. Flestir koma frá Nýja Sjálandi en þetta árið kemur enginn þaðan til að vinna hjá SS.
Oddný Anna Björnsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka smáframleiðenda matvæla: Ddný ræðir markmið og tilgang samtakanna og vaxandi eftirspurn eftir vörum smáframleiðenda matvæla.
Vera Illugadóttir: Þægar og óþekkar smámörgæsir í Nýja-Sjálandi eru viðfangsefni Veru að þessu sinni.
Útvarpsfréttir.
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Í Heimskviðum í dag er fjallað um öryggi blaðamanna í heiminum, sem víða er verulega ábótavant og segjum frá samblandi íþrótta og aktívsima eftir að leikmenn NBA neituðu að spila leiki á dögunum í mótmælaskyni vegna kynþáttamisréttis í Bandaríkjunum. Og svo fáum við nýjustu fréttir frá ástandinu í Hvíta-Rússlandi.
Í vikunni hófust í París réttarhöld yfir mönnum sem sakaðir eru um aðild að skotárás á ritstjórnarskrifstofu franska blaðsins Charlie Hebdo fyrir fimm árum. Þau ellefu sem voru myrt í vinnunni þennan janúardag í París eru ekki einu blaðamennirnir sem ekki fá að snúa aftur heim eftir vinnu. Bara í ár hafa 17 fréttamenn látist vegna vinnu sinnar, meirihluti þeirra var myrtur. Birta Björnsdóttir fjallar um málið og ræðir við dr.Courtney Radsch, talskonu samtakanna Committee Protecting Journalists, sem jafnframt er fyrrum blaðamaður hjá The New York Times. Þá heyrum við einnig í Önnu Lúðvíksdóttur, framkvæmdastjóra Amnesty á Íslandi, en meðal verkefna samtakanna er að standa vörð um tjáningarfrelsið. Báðir voru viðmælendur sammála um að árásir, hótanir og lögsóknir á hendur blaðamönnum hafi aukist á tímum kórónuveirufaraldursins.
Það varð uppi fótur og fit í síðustu viku þegar liðsmenn Milwuakee Bucks mættu ekki til leiks í einvígi sínu við Orlando Magic í NBA-deildinni í körfubolta. Með þessu vildu leikmenn mótmæla því kerfisbundna óréttlæti sem svartir Bandaríkjamenn eru beittir. NBA-deildin er orðin pólitísk, sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti, og lét sér fátt um finnast og það andar köldu milli leikmanna deildarinnar og forsetans. En hvaða áhrif hafa íþróttamenn á samfélagslegur umbætur? Guðmundur Björn talar um aktivisma og íþróttir.
Þá rifjum við upp hvað hefur gest undanfarnar vikur í Hvíta-Rússlandi, og spjöllum við góðkunningja Heimskviða, Sofyu Orlosky. Í Hvíta-Rússlandi situr Lúkasjenka forseti enn við völd þrátt fyrir mikil mótmæli almennings.
Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þáttarins eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Birta Björnsdóttir.
Útvarpsfréttir.
Blanda er þemað í þessum þætti. Það má blanda ýmsu saman og blöndur er víða að finna í lífi hvers manns. Við fáum áfenga blöndu af humlum og geri á Ísafirði, blöndum krem og smyrsl í Hafnarfirði og svo er það sjálf Blanda sem rennur út í hafið. Allt þetta skoðum við í þessum síðasta þætti vertíðarinnar. Inslög unnu Ágúst Ólafsson, Dagur Gunnarsson og Halla Ólafsdóttir.
Umsjón: Dagur Gunnarsson
Sögur af landi hefja aftur göngu sína í dag eftir sumarfrí. Í þættinum er rætt við Mývetninginn Inga Þór Yngvason, en hann var einn þeirra sem tók þátt í sprengingunni á Miðkvíslarstíflu fyrir 50 árum síðan. Ingi Þór segir frá veiðiskap og fuglavernd við Mývatn, þátttöku sinni í Miðkvíslarsprengingunni, sem og forláta fallbyssu sem hann neyddist til að fela fyrir yfirvöldum. Í þættinum verður einnig farið í heimsókn í Háskólann á Bifröst. Þar er rætt við Margréti Jónsdóttir Njarðvík, sem tók við starfi rektors í sumar. Þar var auk þess rætt við þau Egil Örn Rafnsson og Bryndísi Ingu Reynis, nemendur við skólann sem nýfluttir eru í háskólaþorpið á Bifröst.
Efni í þáttinn unnu Úlla Árdal og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
„Það sem er raunverulega áhugavert við hvert og eitt okkar eru grímurnar, ekki raunsæið á bak við þær. Þetta er auðmýkjandi játning, en við erum öll gerð úr því sama,“ skrifaði Oscar Wilde í einni ritgerða sinna. Án grímunnar og dýrðarljómans erum við öll tiltölulega svipuð, mannleg. Í þessari þáttaröð verður varpað ljósi á glansmyndirnar allt um lykjandi. Fyrirbrigði, táknmyndir og hugmyndir verða skoðaðar frá persónulegu sjónarhorni og til að mynda fjallað um minni, svik, hlustun, hraða, feguð,fölsun, eignir og egó.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Katrín Ásmundsdóttir.
Af handahófi gröfum við upp gömul hljóðbrot úr safni RÚV og hlustum á þau með eyrum ársins 2020. Rætt er við samtímafólk og þegar möguleiki gefst, einhvern sem tengist umræddri upptöku.
Uppeldisfræðingur, prestur, læknir og lögfræðingur voru spurð ,,hverjar teljið þér tíðastar orsakir hjónaskilnaðar?'' í samtalsþætti Sigurðar Magnússonar Spurt og spjallað árið 1958. Við hlustum á svör þátttakenda í þætti dagsins og veltum fyrir hvernig viðhorf til hjónabands og skilnaðar hefur breyst á síðustu sextíu árum. Eftirtektarvert er einnig að ýmislegt virðist ekki hafa breyst enda kannski eitthvað við eðli ástar, rómantískra samskipta og tilfinningalegra vandamála hjóna sem stenst tímans tönn.
Rætt er við Kristínu Tómasdóttur, hjónabandsráðgjafa.
Umsjónarmaður: Anna Gyða Sigurgísladóttir
Útvarpsfréttir.
Umræður um menningu og listir.
Umsjónarmenn eru Anna Marsibil Clausen, Davíð Kjartan Gestsson, Guðni Tómasson, Snærós Sindradóttir, Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson.
Umræður um menningu og listir.
Fjallað er um Solastalgia, Tenet og Folklore.
Gestir þáttarins eru Erlingur Óttar Thoroddsen, handritshöfundur og leikstjóri, Hallfríður Þóra Tryggvadóttir, leikhúsframleiðandi og markaðsstjóri og Flosi Þorgeirsson, tónlistarmaður og hlaðvarpsstjórnandi. Umsjón: Anna Marsibil Clausen.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Konur eru áhyggjufullar hvort sýni úr leghálsskoðun hafi verið rétt greind og hvort ástæða sé til að taka ný sýni. Þetta segir formaður Félags fæðingar- og kvensjúkdómalækna. Heilbrigðisráðherra harmar þau alvarlegu og afdrifaríku mistök sem urðu hjá leitarstöð Krabbameinsfélagsins.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin gerir ekki ráð fyrir að bólusetningar gegn COVID-19 hefjist að einhverju ráði fyrr en um mitt næsta ár.
Tilslökun tveggja metra reglu og fjölgun úr 100 manns í 200 er skref í rétta átt að mati leikhússtjóra stóru leikhúsanna. Þær duga þó ekki til þess að sýningar hefjist af fullum þunga. Þjóðleikhússtjóri vonast eftir frekari tilslökunum á næstu vikum.
Mörg stéttarfélög hafa sett reglur um að bannað sé að dvelja í sóttkví eða einangrun í orlofshúsum.
Breyttar sóttvarnarreglur sem taka gildi á mánudag breyta litlu um skólahaldi í framhaldsskólum og háskólum. Þær hafa heldur ekki mikil áhrif í stóru leikhúsunum. Leikhússtjóri Borgarleikhússins segir þær að sjálfsögðu jákvæðar en þær bjargi ekki lífi leikhúsanna. Hún segir að fólk þyrsti í andlega næringu, nánd og samveru í leikhúsinu. Arnar Páll Hauksson ræddi við Brynhildi Guðjónsdóttur.
Hrun þýsku greiðslumiðunarinnar Wirecard afhjúpaði stærsta fjármálasvindli Þýskalands. Í viðbót við svindlið er einn kaflinn í þeirri sögu hvernig Wirecard hundelti blaðamenn Financial Times, sem voru fyrstir til að impra á að ekki væri allt í lagi. Wirecard sakaði þá um að ganga erinda vogunarsjóða sem græddu á verðfalli hlutabréfa Wirecard, braust inn í tölvur þeirra og herjaði á þá á samfélagsmiðlum. Útspekúleruð herferð, sem lauk þegar svindl Wirecard varð lýðum ljóst. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá.
Kondórinn er allra ránfugla stærstur og jafnframt heitið á sameiginlegri leyniþjónustu átta einræðisríkja í Suður-Ameríku. Þau sameinuðust um mannrán, pyntingar, nauðganir og morð á mörg hundruð pólitískum andsæðingum þeirra á áttunda og níunda áratugnum. Pálmi Jónasson sagði frá.
Dánarfregnir.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Leikin eru nokkur lög sem nutu vinsælda á tímabilinu 1986 til 1988 með hljómsveitum á borð við Fairground Attraction, Level 42, T'Pau, Johnny Hates Jazz og Timbuk 3.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Steinþór Skúlason fosrstjóri SS: Sláturhúsin hafa verið í viðbragðsstöðu síðan Covid 19 farsóttin hófst en þau stóla að langmestu leiti á erlent farandverkafólk í sláturtíðinni. Flestir koma frá Nýja Sjálandi en þetta árið kemur enginn þaðan til að vinna hjá SS.
Oddný Anna Björnsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka smáframleiðenda matvæla: Ddný ræðir markmið og tilgang samtakanna og vaxandi eftirspurn eftir vörum smáframleiðenda matvæla.
Vera Illugadóttir: Þægar og óþekkar smámörgæsir í Nýja-Sjálandi eru viðfangsefni Veru að þessu sinni.
Umræður um menningu og listir.
Umsjónarmenn eru Anna Marsibil Clausen, Davíð Kjartan Gestsson, Guðni Tómasson, Snærós Sindradóttir, Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson.
Umræður um menningu og listir.
Fjallað er um Solastalgia, Tenet og Folklore.
Gestir þáttarins eru Erlingur Óttar Thoroddsen, handritshöfundur og leikstjóri, Hallfríður Þóra Tryggvadóttir, leikhúsframleiðandi og markaðsstjóri og Flosi Þorgeirsson, tónlistarmaður og hlaðvarpsstjórnandi. Umsjón: Anna Marsibil Clausen.
Næturútvarp Rásar 1.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Rúnar Róbertsson.
Flestum hlaupum hefur verið frestað undanfarið en á morgun verður breyting á því þá mun hið árlega Vestmannaeyjahlaup fara fram í 10. sinn, í Eyjum að sjálfsögðu. Magnús Bragason er einn af þeim sem koma að hlaupinu. Magnús var á línunni hjá okkur.
Við hringdum í Smára McCarthy, alþingismann, en hann telur að njósnahneykslið sem nú skekur Danmörku, snerti íslendinga með beinum hætti. Leyniþjónusta danska hersins veitti bandaríksku þjóðaröryggisstofnunni, NSA, aðgang að ljósleiðurum en Smári segir að allir tölvupóstar okkar, skjöl, fjarfundir og öll fjarskipti fara um þessa þrjá sæstrengi.
Samgöngustofa er að hleypa af stokkunum herferðinni TÖKUM LYF OG VÍMUEFNI ÚR UMFERÐ(INNI). Mikil umræða skapaðist á samfélagsmiðlum þar sem fólk lýsti yfir ónægju með svokallaða kitlu herferðarinnar sem birtist á hinum ýmsu miðlum . Fannst fólki hún virka stuðandi í framsetningu og óttuðust jafnvel flogaveikir áhrif hennar. Gunnar Geir Gunnarsson, deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu sagði okkur frá herferðinni.
Fréttir vikunnar voru á sínum stað á föstudegi. Valtýr Björn Valtýsson, fjölmiðlamaður, og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir,alþingismaður, komu til okkar.
Íslenska landsliðið í knattspyrnu karla mætir Englendingum á Laugardalsvelli á morgun, laugardag, eins og þjóð veit. Óhætt er að segja að landsmenn séu spenntir fyrir leiknum en engir áhorfendur verða leyfðir á staðnum svo fólk verður að fylgjast með í gegnum sjónvarpsskjáinn. Einn helsti sparkspekingur þjóðarinnar, Tómas Þór Þórðarson ritstjóri enska boltans hjá Símanum, kíkti til okkar og spáði í spilin fyrir leikinn.
Tónlist:
Eyþór Ingi og Lay Low - Aftur heim til þín
Warmland - Family
Foreign Monkeys (með Gísla Helgasyni) - Vestmannayeyjar
Hjálmar - Taktu þessa trommu
Todmobile - Ég geri allt sem þú vilt
Bee Gees - Night fever
Bubbi Morthens og Katrín Halldóra - Án þín
Jón Jónsson - Dýrka mest
Mugison - Stingum af
Hjaltalín - Þú komst við hjartað í mér
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Brynjólfur þór Guðmundsson
Útvarpsfréttir.
Morgunverkin er fyrst og fremst tónlistarþáttur þar sem Þórður Helgi spilar bara það besta sem heimurinn hefur alið af sér síðustu 30-40 árin.
Morgunverkin 4. september 2020
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson
Stefán Hilmarsson - Súkkulaði og sykur
Easybeats - Friday on my mind
Housemartins - Happy hour
Arlo Parks - Black dog
Madonna - Hung up
Mammút - Prince
OMC - How bizarre
Laufey Lín Jónsdóttir - Someone new
Á móti sól - Langt fram á nótt
Cars - Drive
Mavereck Sabre - Drifting
Baggalútur - Appelsínugul viðvörun
10:00
Valdimar og Memfis - Okkar eigin Osló
Cure - Friday I?m in love
Dream Wife - Temporary
Eivör - Let it come
Cardigans - Erase/Rewind
Kylie - Say something
Stevie Wonder - For once in my life
Pixies - Hey
Löv og Ljón - Kaflaskil
Hr. Hnetusmjör - Stjörnurnar
Mö & Major Lazer - Lean on
Jame Brown - The Boss
Jóhanna Guðrún - Sumar konur (Tónaflóð)
All Saints - Never ever
11:00
Mezzoforte - Garden party
Billie Eilish - my future
Ice Cube - It was a good day
Isley Brothers - Footsteps in the dark
Björk - Play dead
Isley Brothers - Shout
Katy Perry - Roar
Stardust - Music sounds better with you
Albatross - Ég ætla að skemmta mér
Hreimur - Lítið hús
De La Soul - Say no go
Dua Lipa - Levitating Ft. Madonna & Missy Elliot
12:00
Elín Ey - Ljósið
Marproject - Shangri-la
Red Barnett - Astonaut
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Áætlað er að Reykjavíkurborg verji einum milljarði meira í fjárhagsaðstoð í ár en gert var ráð fyrir. Sviðsstjóri hjá borginni býst við að þeim fjölgi sem þurfi aðstoð.
Um 50 sentimetra jafnfallinn snjór var á Biskupshálsi í morgun og krapi á fjallvegum. Búist er við vonskuveðri á Norður-, Austur- og Suðausturlandi fram á kvöld.
Slakað verður á samkomutakmörkunum á mánudag. Þá mega mest tvöhundruð koma saman, og eins metra regla tekur við af tveggja metra reglunni
Eldur logar í olíuskipi skammt frá Sri Lanka og er óttast er að alvarleg umhverfisspjöll verði berist eldurinn í geyma skipsins.
Frumvarp um hlutdeildarlán félagsmálaráðherra var samþykkt á Alþingi í gær. Hagfræðingur Landsbankans telur að þetta geti leitt til verðhækkana á fasteignamarkaði.
Sameinuðu þjóðirnar hvetja ríki heims til að styðja hjálparstarf í Jemen, en yfir tuttugu milljónir þurfi þar á aðstoð að halda eftir langvarandi stríðsástand, flóð og aðrar hörmungar. Þá geti kórónuveirufaraldurinn bitnað hart á nauðstöddum.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson, Lovísa Rut Kristjánsdóttir og Matthías Már Magnússon.
Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir
Góð stemning í Popplandi dagsins, fullt af nýrri íslenskri og erlendri tónlist, þessar helstu tónlistarfréttir, Ómland kíktu í heimsókn, og plata vikunnar gerð upp sem er nýjasta plata Summa Hvanndal og heitir Ljósastaurar Lífsins.
Inspector Spacetime - Teppavirki
Blaz Roca - Hvítir Skór (ft. Ásgeir Trausti)
Una Stef & SP74 - Tunglið Tunglið Taktu Mig
Billie Eilish - My Future
Laufey Lin - Someone New
Nýdönsk - Örlagagarn
Ómland - Geymi Mínar Nætur
Sufjan Stevens - Video Games
Stefanía Svavars - Flying
Coldplay - Speed Of Sound
Summi Hvanndal - Það Varst Alltaf Þú
Orville Peck & Shania Twain - Legends Never Die
Sycamore Tree - Home Again
Ásgeir Trausti - Minning
Alex Kapranos & Clara Luciani - Summer Wine
Travis - A Ghost
Jet Black Joe - Starlight
Babes Of Darkness - Self-worthless
Koffee - Pressure
Herra Hnetusmjör - Takk Fyrir Allt
Beyoncé - Drunk In Love
Beyoncé - Black Parade
Prins Póló - Líf Ertu Að Grínast
MGMT - Time To Pretend
Phil Oakley & Giorgio Moroder - Together In Electric Dreams
Eivör - Sleep On It
KK - Álfablokkin
Warmland - Family
The Stranglers - Let Me Down Easy
Sólveig Matthildur - Last Date
County Line Runner - Cold Dawn
Guðni Þór - Always TRied To Walk Alone
Auður - Ljósin Kveikt
Benee - Supalonely
Svala - Sjálfbjarga
Krassasig - Þú Ert Eins og Hún
Hjálmar - Segðu Já
Miley Cyrus - Midnight Sky
Anthony Conzales - Midnight City
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Þau Valur Grettisson, Guðrún Dís Emilsdóttir og Hrafnhildur Halldórsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu á daginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur gefið út auglýsingu um að rýmri samkomutakmarkanir taki gildi mánudaginn 7. september. Þá mega koma saman 200 í stað 100 og tveggja metra nálægðarreglu verður breytt í eins metra nálægðarreglu. Hvaða þýðingu hefur þetta fyrir leikhúslífið í landinu ? Brynhildur Guðjónsdóttir leikhússtjóri Leikfélags Reykjavíkur lítur til okkar á eftir.
Það vakti undrun margra þegar Þjóðkirkjan uppfærði forsíðu mynd sína á facebook í dag. Það sem vakti mesta athygli var nýtt útlit frelsarans Jesús Krists, en þar sjáum við Jesú með brjóst og andlitsfarða. Myndin var gerð til að auglýsa sunnudagaskóla Kirkjunar. Pétur G. Markan samskiptastjóri hjá Þjóðkirkjunni segir okkur nánar frá þessu máli.
Við ætlum líka að heyra af tvöfaldri afmælisveislu sem verður í beinni útsendingu í sjónvarpi og á Rás 1 í kvöld kl. átta. Guðni Tómasson og Halla Magnúsdóttir koma og segja okkur frá dagskránni.
Grínistinn Björn Bragi er með nokkur járn í eldinum þessa dagana. Annað kvöld hefst nýr spuringaþáttur sem ber nafnið KVISS, þar verður Björn spyrill og spurningahöfundur. Spurningar virðast hafa átt hug hans allan undanfarið því nýverið gaf hann út spil sem heitir Pöbbkviss.
Tíðar fréttir hafa verið af uppsögnum að undanförnu og þungt hljóð í mörgum fyrir komandi vetur. Byggingaiðnaðurinn virðist þó enn vera í fullum gangi og minna atvinnuleysi þar en raunin er annars staðar. Finnbjörn Hermannsson er formaður Byggiðnar Félags byggingarmanna - hann kemur til okkar eftir smástund.
Útvarpsfréttir.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Konur eru áhyggjufullar hvort sýni úr leghálsskoðun hafi verið rétt greind og hvort ástæða sé til að taka ný sýni. Þetta segir formaður Félags fæðingar- og kvensjúkdómalækna. Heilbrigðisráðherra harmar þau alvarlegu og afdrifaríku mistök sem urðu hjá leitarstöð Krabbameinsfélagsins.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin gerir ekki ráð fyrir að bólusetningar gegn COVID-19 hefjist að einhverju ráði fyrr en um mitt næsta ár.
Tilslökun tveggja metra reglu og fjölgun úr 100 manns í 200 er skref í rétta átt að mati leikhússtjóra stóru leikhúsanna. Þær duga þó ekki til þess að sýningar hefjist af fullum þunga. Þjóðleikhússtjóri vonast eftir frekari tilslökunum á næstu vikum.
Mörg stéttarfélög hafa sett reglur um að bannað sé að dvelja í sóttkví eða einangrun í orlofshúsum.
Breyttar sóttvarnarreglur sem taka gildi á mánudag breyta litlu um skólahaldi í framhaldsskólum og háskólum. Þær hafa heldur ekki mikil áhrif í stóru leikhúsunum. Leikhússtjóri Borgarleikhússins segir þær að sjálfsögðu jákvæðar en þær bjargi ekki lífi leikhúsanna. Hún segir að fólk þyrsti í andlega næringu, nánd og samveru í leikhúsinu. Arnar Páll Hauksson ræddi við Brynhildi Guðjónsdóttur.
Hrun þýsku greiðslumiðunarinnar Wirecard afhjúpaði stærsta fjármálasvindli Þýskalands. Í viðbót við svindlið er einn kaflinn í þeirri sögu hvernig Wirecard hundelti blaðamenn Financial Times, sem voru fyrstir til að impra á að ekki væri allt í lagi. Wirecard sakaði þá um að ganga erinda vogunarsjóða sem græddu á verðfalli hlutabréfa Wirecard, braust inn í tölvur þeirra og herjaði á þá á samfélagsmiðlum. Útspekúleruð herferð, sem lauk þegar svindl Wirecard varð lýðum ljóst. Sigrún Davíðsdóttir sagði frá.
Kondórinn er allra ránfugla stærstur og jafnframt heitið á sameiginlegri leyniþjónustu átta einræðisríkja í Suður-Ameríku. Þau sameinuðust um mannrán, pyntingar, nauðganir og morð á mörg hundruð pólitískum andsæðingum þeirra á áttunda og níunda áratugnum. Pálmi Jónasson sagði frá.
Fréttastofa RÚV.
Lykilorð þáttarins Fuzz er Rokk! Það er Fuzztudagskvöld og þá er Rokk á Rás 2. Hér verður allskonar rokk; nýtt rokk, kántrí-rokk, 70´s, 60´s, 80´s 50´s, 90´s rokk og þungarokk. Rokkið fær sjálft að tala og syngja og maður á að hlusta hátt.
Umsjón: Andrea Jónsdóttir.