16:05
Meistarar harmonikunnar

Laugardaginn 18. apríl 2026 komu nokkrir af fremstu harmoniku- og bandóneonleikurum heims koma saman í fyrsta skipti:

Prof. Dr. Klaudiusz Baran (Pólland),

Prof. Raimondas Sviackevičius (Litháen)

og Prof. Giuseppe Scigliano (Ítalía), ásamt íslenska harmonikuleikaranum German Khlopin.

Einnig komu fram Steiney Sigurðardóttir sellóleikari og strengjakvartettinn Icelandic Strings. Emma Garðarsdóttir og Agnes Eyja Gunnarsdóttir sem léku á fiðlur. Þórunn Harðardottir á víólu og Ólöf Sigursveinsdótir á selló .

Kvintett úr konservatoríinu í Salerno: Giovanno Bartato og Marco Melillo á fiðlur. Matteo Mizera á víólu, Davide Levi á selló og Ottavio Gaudiano á kontrabassa.

Saman futtu þau tónverk hins argentíska Astor Piazzolla, sem skapaði Tango Nuevo og gjörbreytti heimsmynd tangósins.

Kynnir kvöldsins var Paolo Picchio – einn fremsti Piazzollafræðingur heims og framkvæmdastjóri Bugari Armando í Castelfidardo. Hann hefur haldið fjölmarga fyrirlestra víða um heim um líf og verk Piazzolla, sögu harmonikunnar og tengsla hennar við kammertónlist og gaf meðal annars út ítarlega æviritun tónskáldsins árið 2021.

Tónleikarnir í Salnum voru hápunktur Harmonikuhátíðar Listaháskóla Íslands í samstarfi við Salinn Tónlistarhús dagana 16.–18. apríl.

Efnisskrá:

Tanti Anni Prima 1984

Le Grand Tango 1982

Oblivion 1982

Anxiety, Despertar, Fear úr Five tango sensations 1989

Nightclub 1960

Primavera Portena 1969

La Muerta del Angel 1962

Milonga del Angel 1965

Fuga y Misterio 1968 úr söngleik Astors Piazzolla - Maria de Bueonos Aires.

Adios nonino 1959

Michelangelo 70 1974

Liebertango 1974

Birgir Jón Birgisson hljóðritaði

Umsjón: Pétur Grétarsson

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 1 klst. 28 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,