
Tónleikurinn áskilur sér rétt til að fara í allar áttir, ákveðin tónskáld verða tekin fyrir í sumum þáttum, í öðrum eltir þáttastjórnandi ákveðnar tilfinningar, liti eða kenndir. Aðrir tónlistarmenn en tónskáld verða líka til umfjöllunar, flytjendur teknir tali og spurðir spjörunum úr. Einnig verður farið í ferðalög útfrá nöfnum og verkum tónskálda sem eru á dagskrá hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands eða á öðrum vettvangi þau skoðuð í víðu samhengi og leikin önnur verk eftir sömu tónskáld.
Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir
Tveir fyrstu íslensku strengjakvartettarnir voru samdir sama ár, eða árið 1939. Þetta eru Eigið tema með varíatíónum og fúgu eftir Helga Pálsson og Mors et vita op. 21 eftir Jón Leifs. Í þættinum að þessu sinni verða þeir báðir spilaðir, og auk þess einn þáttur úr strengjakvartettnum Frá draumi til draums eftir Jón Nordal.
- Endurflutt