19:00
Tónleikur
Béla Bartók

Tónleikurinn áskilur sér rétt til að fara í allar áttir, ákveðin tónskáld verða tekin fyrir í sumum þáttum, í öðrum eltir þáttastjórnandi ákveðnar tilfinningar, liti eða kenndir. Aðrir tónlistarmenn en tónskáld verða líka til umfjöllunar, flytjendur teknir tali og spurðir spjörunum úr. Einnig verður farið í ferðalög útfrá nöfnum og verkum tónskálda sem eru á dagskrá hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands eða á öðrum vettvangi þau skoðuð í víðu samhengi og leikin önnur verk eftir sömu tónskáld.

Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir

Tónlistin sem verður leikin í þættinum er eftir Béla Bartók og verða leikin verk þar sem heyra má áhrif frá þjóðlagatónlist Ungverjalands og Rúmeníu og fleiri svæða Mið-Evrópu. Bartók var ötull safnari þjóðlegrar tónlistar á þessum svæðum og áhrif hennar eru oft greinileg í verkum hans, bæði þar sem sjáanlegt er í titlinum að hún er notuð sem byggingarefni, og í öðrum verkum.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 48 mín.
  • Endurflutt
,