13:00
Gull og grænir skógar
Skógurinn sem samspil og rými - Alþjóðadagur skóga

Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.

Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.

Í þessum þriðja þætti er fjallað um samvinnu mismunandi tegunda í skógum – hvoru tveggja út frá vísindum og ævintýrum.  Rætt er um jákvæð skynáhrif og leyndardóma skógarins. Þátturinn stendur í samhengi við Alþjóðadag skóga. Viðmælendur sinna skógarumhirðu, starfa fyrir skógræktarfélög eða við rannsóknir á skógarumhverfinu.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 50 mín.
,