
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Mannfjöldi eða múgur getur verið hrikalegt afl, þar sem hundruð eða jafnvel þúsundir manna virðast fá eina hópsál. Aflið getur verið jákvætt, eins og þegar fagnað er gleðiviðburði eða sýnd samkennd við sorgarviðburð, en það getur líka verið hættulegt. Stundum getur það breytt mannkynssögunni, eins og þegar mannfjöldi gerir uppreisn eða byltingu. Í þessum þætti verða lesin brot úr nokkrum bókum þar sem lýst er krafti múgsins, svo sem skáldsögunum „Vesalingarnir“ eftir Victor Hugo, „Saga tveggja borga“ eftir Charles Dickens og „Billy Budd sjóliði“ eftir Herman Melville. Einnig verða flutt brot úr tónverkum þar sem lýst er múg eða miklum mannfjölda, má þar nefna sönglagið „La foule“ eftir Cabral, lag sem Edith Piaf gerði frægt, og atriði úr óperunum „La Boheme“ eftir Puccini, „Billy Budd“ eftir Britten og „Meistarasöngvararnir í Nürnberg“ eftir Wagner. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Gunnar Hansson.