12:42
Þetta helst
Konan á bak við sögulegt dómsmál í Hæstarétti

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Anna Bryndís Einarsdóttir taugalækni voru í vikunni dæmdar skaðabætur frá íslenska ríkinu í Hæstarétti Íslands vegna þess að hún fékk skertar greiðslur úr fæðingarorlofssjóði þegar hún flutti til Íslands frá Danmörku árið 2019.

Anna Bryndís hefði átt að fá hærri fæðingarorlofssjóðsgreiðslur í Danmörku þar sem hún var í sérnámi í læk nisfræði og hafði unnið sem læknir og unnið sér inn réttindi til ákveðinna greiðslna í fæðingarorlofi. Þegar hún flutti heim til Íslands vildi Fæðingarorlofssjóður ekki greiða henni þegar tekjutengdar greiðslur heldur einungis lágmarksgreiðslur.

Anna Bryndís ákvað að leita réttar sínar í málinu þar sem hún taldi niðurstöðuna vera brot á EES-samningnum. Hún ræðir um þessa sjö ára baráttu sína við íslenska ríkið í viðtali við Þetta helst.

En hvaða máli skiptir þessi dómur í stóra samhengi hlutanna og er hann sögulegur?

Gunnar Þór Pétursson er prófessor í lögfræði við Háskólann í Reykjavík og sérfræðingur í Evrópurétti. Hann segir dóminn í máli Önnu Bryndíar vera sögulegan að mörgu leyti og að hann hafi bæði lögfræðilegar og mögulega pólitískar afleiðingar.

Dómurinn tengist hinni svokölluðu bókun 35 sem snýst tengsl EES-samningsins við löggjöfina í þeim ríkjum sem hafa tekið upp samninginn.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 15 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,