14:03
Djassland
John Coltrane - upphafið

Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.

Tenórsaxófónleikarinn John Coltrane fæddist í Hamlet í norður Karólínufylki Bandaríkjanna 23. september 1926.

Tónlistarferill hans var ekki langur, en hann var nálægt þrítugu þegar hann fór að láta að sér kveða í hljómsveitum Miles Davis og Thelóníusar Monk. Sólóferillinn tók við sér í byrjun sjöunda áratugarins og goðsagnakenndur kvartett hans varð helsta viðmið nútímadjasstónlistarinnar á fyrstu árunum. Sífelld leit Coltranes að sinni rödd í tónlistinni varð til þess að hljóðfæraleikur hans fór langt út fyrir endamörk meginstraumsins og þrátt fyrir að ná mikilli hylli með plötum eins og A Love Supreme - urðu þreifingar hans undir lok ferilsins mörgum mjög framandi. Coltrane lést aðeins fertugur að aldri 1967.

Í þessum fyrri þætti um saxófónmeistarann bregður Pétur Grétarsson upp mynd af uppvexti hans og tónlistarferli fram að fyrstu sólóplötunum.

The Night Has A Thousand Eyes - Jerry Brainin - John Coltrane 1960

The sweetheart of Sigma Chi - Gene Austin - 1936

Warm Valley - Duke Ellington - Johnny Hodges og hljómsveit 1954

Sleep - Earl Bostic og hljómsveit hans 1951

Oleo - Sonny Rollins - Miles Davis kvintettinn 1956

Trinkle, tinkle - Thelonious Monk og John Coltrane 1957

So What - Kind of Blue - Miles Davis sextettinn 1959

Blue train - John Coltrane sextettinn 1958

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 56 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,