19:00
Tónleikur
Strengjakvartettar

Tónleikur er þáttur um tónlistarstefnur og tónlistarfræði, tónlistarmenn, tónskáld og tónlistarflytjendur.

Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir

Áður á dagskrá veturinn 2008-2009

Frá því Tónleikurinn fór aftur af stað síðastliðið haust hafa strengjakvartettar verið í brennidepli. Nú er komið að þáttaskilum í sögu strengjakvartettanna og Tónleiksins um leið og hér eftir munu skiptast á strengjakvartettar 20. aldarinnar og sögur af tónlistarmönnum sem hafa farið sínar eigin leiðir í túlkun og sköpun. Í þessum þætti verður leikin tónlist með fiðluleikaranum Yehudi Menuhin og samstarfsmönnum hans af ólíkum toga – t.d. franska jassfiðlaranum Stephan Graphelli og indversku tónlistarmönnunum Ravi Shankar sítarleikara og Alla Rakha tablaleikara.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 50 mín.
e
Endurflutt.
,