
Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Litla flugan dregur fram nokkrar hljómplötur með Öskubuskum og Sigrúnu Jónsdóttur sem hóf feril sinn í Öskubuskum en varð síðan ein af vinsælustu söngkonun landsins. Einnig syngur Ragnar Bjarnason syngur lag sem hann flutti í danslagakeppn SKT árið 1954. Jón Múli Árnason og Ingibjörg Þorbergs syngja annað lag sem þau fluttu í þessari sömu keppni. Ingibjörg Þorbergs syngur jafnframt tvö lög á ensku.