Séra Ágúst Sigurðsson frá Möðruvöllum ræðir í þessum þáttum við konur sem bjuggju á prestssetrum víðs vegar um landið á síðustu öld. Í viðtölum við konurnar sem flestar eru ekkjur presta, kemur fram mynd af íslenska dreifbýlinu um miðja 20. Öldina. Hægt er að nálgast þættina á hlaðvarpi Ríkisútvarpsins.
Rætt er við frú Önnu Sveinbjörnsdóttur um árin sem hún og maður hennar séra Tómas Guðmundsson dvöldu á Patreksfirði og í Hveragerði.
Umsjón: Ágúst Sigurðsson frá Möðruvöllum.
Aðstoð við dagskrárgerð Ævar Kjartansson.
Stef þáttarins er Sælir eru þeir eftir Inga T. Lárusson, leikið af Kristínu Axelsdóttur í Grímstungu á Hólsfjöllum.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Í þættinum verður fjallað um Rúdolf erkihertoga sem var nemandi Beethovens, en einnig vinur hans og velgjörðamaður. Rúdolf fæddist 1788 og hóf á unglingsaldri nám í píanóleik og tónsmíðum hjá Beethovens. Árið 1809, þegar Rúdolf var rúmlega tvítugur, átti hann frumkvæði að því að Beethoven fengi árlegan fjárstyrk frá þremur aðalsmönnum, en einn þeirra var Rúdolf sjálfur. Beethoven tileinkaði Rúdolf mörg af verkum sínum og í þættinum verður eitt þeirra flutt í heild, en leiknir kaflar úr tveimur öðrum. Þetta eru Kveðjusónatan, sem Beethoven samdi þegar Rúdolf þurfti að flýja frá Vínarborg vegna Napóleonsstyrjaldanna árið 1809, Erkihertogatríóið sem Beethoven samdi 1810-11 eftir að Rúdolf kom aftur, og Missa solemnis, sem var samin í tilefni af því að Rúdolf var vígður erkibiskup 1819. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
Fólk og menning í strandbyggðum á Íslandi.
Umsjón: Pétur Halldórsson.
Rætt er við Hannes Baldvinsson, fyrrverandi síldarmatsmann á Siglufirði. Hannes ólst upp í síldarævintýrinu á Siglufirði og var farinn að taka til hendinni á þeim vettvangi á barnsaldri. Ungur fór hann tvö sumur til sjós á síldarskipum og segir frá því í viðtalinu, aðbúnaði um borð, matnum, netaviðgerðum og fleiru. Hann lærði síldarmat á námskeiði í Keflavík og vann við það um ellefu ára skeið, starfaði síðar hjá Siglósíld. Hann segir frá síldarmatinu, í hverju það fólst, atvikum sem upp komu, miklum ferðalögum og fjarveru frá fjölskyldunni og svo framvegis.
Veðurstofa Íslands.
Hver var fyrsta íslenska minningargreinin? Af hverju skrifa Íslendingar svona persónulega um látið fólk? Eiga greinarnar að vera í 2. eða 3. persónu? Hver skrifar? Um hvern? Má tala um sjálfsvíg? Hvaða áhrif hafa samfélagsmiðlar? Eru minningargreinar Moggans í lífshættu? Verða minningargreinar - einn daginn - minningar einar?
Umsjón: Anna Marsibil Clausen.
Þann 5. Október, 2011 sendi Timothy D. Cook, forstjóri Apple, tölvupóst á starfsmenn fyrirtækisins. „Ég þarf að deila með ykkur einkar sorglegum fréttum,“ skrifaði hann. „Steve lést fyrr í dag.“ Innan við klukkutíma síðar hafði The New York Times birt 3.500 orða minningargrein um frumkvöðulinn Steve Jobs á vefsíðu sinni.
Í þessum fyrsta þætti minningargreina skoðum við muninn á erlendum og innlendum minningargreinum. Við leitum að elstu minningargreinum Íslands og ræðum við Dr. Árnason um þær breytingar sem orðið hafa á ritstíl og efni minningargreina á síðustu áratugum.
(Áður á dagskrá 2020)
Guðsþjónusta.
Sjómannadagurinn.
Séra Sveinn Valgeirsson þjónar fyrir altari.
Vígslubiskup í Skálholti, séra Kristján Björnsson, predikar
Organisti og kórstjóri: Guðmundur Sigurðsson.
Dómkórinn syngur.
Einsöngur: Dísella Lárusdóttir.
Ritningalestrar: Níels Finsen og Guðjón Arnar Elíasson, frá Landhelgisgæslunni.
Fyrir predikun:
Forspil: Dich krönte Gott mit Freuden (Son Guðs ertu með sanni) eftir Karl Piutti.
Sálmur 775: Líknargjafinn þjáðra þjóða. Lag: Ch. Converse. Texti: Jón Magnússon.
Sálmur 265: Þig lofar faðir. Lag: N. Decius,Grallari 1594. Texti: Sigurbjörn Einarsson.
Sálmur 777: Sólin signir hafið. Lag og texti: Haukur Ágústsson.
Sálmur 774: Ég er á langferð um lifsins haf. Lag: Kl. Östby. Texti. Valdimar V. Snævarr.
Stólvers: Þakkargjörð eftir Sigfús Halldórsson og séra Hjálmar Jónsson.
Eftir predikun:
Einsöngur: Sjá, dagar koma. Lag: Sigurður Þórðarson. Texti: Davíð Stefánsson.
Sálmur 787: Faðir andanna. Þjóðlagfrá Sikiley. Texti: Matthías Jochumsson.
Eftirspil: Prelúda og fúga í D dúr eftir Jean-François Dandrieu.
Útvarpsfréttir.
Halla Tómasdóttir verður sjöundi forseti Íslands. Hún hlaut örugga kosningu, rúm 34 prósent atkvæða. Hátt í 80 prósent kjósenda nýttu atkvæðisrétt sinn. Kjörsókn hefur ekki verið meiri í nærri þrjá áratugi.
Halla segist þakklát, stuðningurinn sé meiri en hún þorði að vona. Hún fékk umtalsvert meira fylgi en síðustu skoðanakannanir gáfu til kynna.
Landsmenn sem fréttastofa hitti í morgun voru almennt ánægðir með niðurstöður kosninganna.
Tveir ráðherrar í ríkisstjórn Ísraels hafa hótað að hætta ef forsætisráðherrann samþykkir vopnahlé áður en Hamas hefur verið upprætt. Slíkt myndi líklega leiða til falls ríkisstjórnarinnar.
Sjómannadeginum er fagnað um allt land í dag - Grindvíkingar halda daginn hátíðlegan í Reykjavík að þessu sinni.
Real Madrid varð í gærkvöldi Evrópumeistari í fótbolta í 15. sinn. Ekkert lið hefur unnið Meistaradeildina jafnoft og enginn þjálfari hefur stýrt liði jafnoft til titilsins og Carlo Ancelotti sem vann sinn fimmta titil sem þjálfari.
Átta þættir um kalda stríðið sem Páll Heiðar Jónsson og Dagur Þorleifsson gerðu á árunum 1987 til 1988.
Umsjón: Páll Heiðar Jónsson og Dagur Þorleifsson.
Þátttakendur:
Sir Alec Douglas Home fyrrum forsætisráðherra.
Sir Frank Roberts fyrrum sendiherra.
Sir John Killick fyrrum sendiherra.
Lestur: Þorsteinn Hannesson, Kristján Franklín Magnúss og Þröstur Leó Gunnarsson.
Þulur: Jón Gunnar Grétarsson.
Bein útsending úr Hörpu:
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur Íslands Hrafnistumenn undir stjórn Lárusar H. Grímssonar.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, matvælaráðherra, flytur ávarp.
Ræðumaður sjómanna er Árni Sverrisson, formaður Félags skipstjórnarmanna.
Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs, heiðrar tíu sjómenn fyrir farsæl félags- og sjómannastörf og björgun mannslífa.
Sjómannadagsráð Grindavíkur tekur þátt í athöfninni.
Karlakórinn Fóstbræður undir stjórn Árna Harðarsonar syngur nokkur lög á milli atriða í tilefni dagsins.
Kynnir er Gerður G. Bjarklind.
Leikin eru sjómannalög úr ýmsum áttum og stuðst að miklu leyti við óskalög hins afar vinsæla óskalagaþáttar Á frívaktinni, sem var á dagskrá Ríkisútvarpsins á árum áður. Kveðjur til sjómanna frá ættingjum og vinum eru fluttar í þættinum og fylgja þeim að sjálfsögðu fjölbreytt og stórskemmtileg sjómannalög.
Umsjón: Svanhildur Jakobsdóttir.
Útvarpsfréttir.
Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir, Atli Sigþórsson og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Kvöldfréttir útvarps
Mánudaginn 5. apríl 1976 mætti 27 ára gamli bréfberinn Bo Jansson ekki í vinnu á pósthúsi í Stokkhólmi þar sem hann starfaði. Hann lét ekki heldur vita af sér eða tilkynnti sig veikan. Bosse hafði alltaf mætt samviskusamlega til vinnu svo samstarfsmenn fengu samstundis áhyggjur af að eitthvað væri ekki eins og það ætti að vera. Þegar lögreglan athugaði málið eftir dúk og disk og braust inn í íbúð Bosse var allt í röð og reglu en hann var hvergi sjáanlegur, hann virtist hafa gufað upp.
Umsjón: Þórdís Gísladóttir.
Samsetning og framleiðsla: Þorgerður E. Sigurðardóttir.
Hugað er að kenningum í fjórða og síðasta þætti en það eru ýmsar slíkar uppi um hvarf bréfberans Bo Jansson. Sumar eru nokkuð trúverðugar en aðrar býsna fjarstæðukenndar. Er hann lífs eða liðinn? Fer hann huldu höfði í Kaliforníu eða er hann kannski kvikmyndaleikari í Norður-Kóreu?
Rætt er við Veru Illugadóttur í þættinum.
Veðurstofa Íslands.
Fléttuþáttur eftir Kristján Sigurjónsson um tvenn hjón í Mývatnssveit, líf þeirra og lífsviðhorf . Hafdís og Steinar eru aðflutt og búa í Reykjahlíðarþorpi, en Kristján og Sigrún eiga heima sunnan vatns á Skútustöðum. Í þættinum er fjallað um samfélagið í Mývatnssveit, brauðstrit, fuglana, náttúruna, verksmiðjuna, innfædda og aðflutta, stríð og frið.
(frá 1995)
Fléttuþáttur eftir Kristján Sigurjónsson um tvenn hjón í Mývatnssveit, líf þeirra og lífsviðhorf. Hafdís Finnbogadóttir og Steinar Sigurðsson eru aðflutt og búa í Reykjahlíðarþorpi, en Kristján E. Yngvason og Sigrún Jóhannesdóttir eiga heima sunnan vatns á Skútustöðum.
Í þættinum er fjallað um samfélagið í Mývatnssveit, brauðstrit, fuglana, náttúruna, verksmiðjuna, innfædda og aðflutta, stríð og frið.
Hljóðvinnslu annaðist Björn Sigmundsson.
(Áður á dagskrá 1995)
Gestur úr Mannlega þættinum talar um bækur.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Sigríður Soffía Níelsdóttir, dansari, danshöfundur og hún er einnig þekkt meðal annars fyrir flugeldasýningahönnun og blómalistaverk. Það opnaði ný sýning eftir hana, Eldblóm, í Hönnunarsafni Íslands fyrir helgi sem við fengum hana til að segja okkur frá, en auðvitað sagði hún okkur aðallega frá því hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sigríður Soffía sagði frá eftirtöldum bókum og höfundum:
Milk and Honey e. Rupi Kaur
Hold on to your Kids e. Gabor Mate
Jelli e. Bompas & Parr
At Work e. Piet Oudolf
Veröld sem var e. Stefan Zweig
Í þáttunum eru rifjaðir upp nokkrir atburðir fyrri tíðar hér á landi og settir fram eins og um nútíma fréttir sé að ræða.
Fréttalesarar eru Sigvaldi Júlíusson, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir og Hermann Sveinbjörnsson.
Umsjónarmaður: Jón Gauti Jónsson.
Í þættinum eru rifjaðir upp helstu atburðir 9. og 10. aldar í anda hefðbundins fréttatíma.
Umsjón: Jón Gauti Jónsson. Lesarar: Sigvaldi Júlíusson, Hermann Sveinbjörnsson og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir.
(Áður á dagskrá 2002)
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Hamrahlíðarkórinn syngur undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur, verkið Kórall, eftir Huga Guðmundsson (1977). Ljóðið orti Ólafur Jónsson frá Söndum. Af plötunni Djúpsins ró (2013)
Snorri Sigfús Birgisson leikur á píanó (1954) eigin útsetningar á þjóðlögum. Af plötunni Heyrðu nú hjartans málið mitt og fleiri íslensk þjóðlög fyrir píanó (2007):
Reyndist engum leiðin löng.
Nú er Ísafoldin frjáls
Ókindarkvæði
Heyrðu nú hjartans málið mitt
Anne Sofie von Otter mezzosópran syngur með Sinfóníuhljómsveitinni í Gautaborg, undir stjórn Kent Nagano, 4 grafskriftir op. 10 fyrir mezzosópran og strengjasveit (1952) eftir Laci Boldemann (1921-1969). Edgar Lee Masters samdi textana.
Verkið er í 4. þáttum:
1. Sarah Brown
2. Ollie McGee
3. Mabel Osborne
4. William and Emily
(Af plötunni: Anne Sofie von Otter : Boldeman Gefors Hillborg (2008)
Sergio Tiempo leikur á píanó, dúett ásamt píanóleikaranum Nelson Freire:
Congada (Danca brasileira) eftir Francisco Mignone (1897-1986).
Bailecito (1940) eftir Carlos Gustavino (1912-2000).
Af plötunni Hommage, (2023) (Útgáfudagur: 8. september 2023). Plata innblásin af þeim tónlistarmönnum sem haft hafa áhrif á Tiempo í gegnum tíðina.
Eggert Stefánsson tenór syngur sönglög eftir Sigvalda Kaldalóns, hljóðritun gerð í Berlín 1930. Meðleikara ekki getið. (Hljóðritun: Berlín 1930)
Vorsins friður eftir Sigvalda Kaldalóns við ljóð eftir Guðmund Guðmundsson skólaskáld.
Vorvindur eftir Sigvalda Kaldalóns við ljóð eftir Ragnar Ásgeirsson.
Ásgerður Júníusdóttir syngur Séð frá tungli, eftir Jórunni Viðar í djass/kabarett-útsetningu sem Ásgerður vann í samstarfi við Agnar Má Magnússon. Með Ásgerði leika Agnar Már Magnússon á píanó, Matthías Hemstock á trommur og slagverk og Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á kontrabassa.
Sean Shibe leikur á gítar, Julia Florida eftir Agustin Barrios Mangore (1885-1944). Af plötunni Profesión (2023).
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-05-27
Hamrahlíðarkórinn - Kórall = Choral.
Snorri Sigfús Birgisson - Reyndist engum leiðin löng = No road too long.
Snorri Sigfús Birgisson - Nú er Ísafoldin frjáls = Iceland freedom is now.
Snorri Sigfús Birgisson - Ókindarkvæði = The ogress.
Snorri Sigfús Birgisson - Heyrðu nú hjartans málið mitt = Hear now my heart.
Gothenburg Symphony Orchestra, Otter, Anne Sofie von - 4 epitaphs op. 10 : for mezzo-soprano and string orchestra (1952) : 1. Sarah Bro.
Gothenburg Symphony Orchestra, Otter, Anne Sofie von - 4 epitaphs op. 10 : for mezzo-soprano and string orchestra (1952) : 2. Ollie McG.
Gothenburg Symphony Orchestra, Otter, Anne Sofie von - 4 epitaphs op. 10 : for mezzo-soprano and string orchestra (1952) : 3. Mabel Osb.
Gothenburg Symphony Orchestra, Otter, Anne Sofie von - 4 epitaphs op. 10 : for mezzo-soprano and string orchestra (1952) : 4. William a.
Tiempo, Sergio, Freire, Nélson - Congada (Danca brasileira).
Tiempo, Sergio, Freire, Nélson - Bailecito (1940).
Eggert Stefánsson - Vorsins friður.
Eggert Stefánsson - Vorvindur.
Ásgerður Júníusdóttir - Séð frá tungli.
Shibe, Sean - Julia Florida.
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Hér segir frá skerjagarðinum á Mýrum í Borgarfirði, fyrst frá staðháttum og höfn, sem þar virðist hafa verið allt frá þjóðveldistíma, og langt fram á tíma einokunarkaupmanna, og m.a. greint frá skipakomum frá Grænlandi þar skömmu áður en byggð þar lagðist af. Einnig segir rá systur Sæmundar fróða, sem þar er sögð hafa búið, og loks hörmulegum sjóslysum sem orðið haa í serkjagarðinum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Útvarpsfréttir.
Jón eigrar um akra tónlistarinnar, léttstígur og viljugur með skemmtilega fróðleiksmola í farteskinu.
Íslensk tónlist spilar yfirleitt stórt hlutverk. Þægilegur og laufléttur morgunþáttur í umsjón frumherja Rásar 2.
Umsjón: Jón Ólafsson
Að loknum forsetakosningum þótti stjórnanda við hæfi að spila eitthvað því tengt. Má þar nefna lag með þýsku sveitinni Forseti auk lags með Halla og Ladda. Þáttinn ber upp á Sjómannadag og því bráðnauðsynlegt að minnast aðeins á hann í bland við sjómannalög sem voru þó sparlega notuð.
Í þessum þáttum mun Viktoría Blöndal fara yfir dansgólf sveitaballana í kringum aldamótin. Sviti, djamm, glimmer, grátur, stemning, tónlistin sem þið hélduð að þið væruð búin að gleyma. Viktoría mun leiða hlustendur um víðan völl, um allt land og í misdjúpa dali tímans með hjálp viðmælenda sinna.
Viktoría ætlar að reyna útskýra andrúmsloftið á þessum tíma, fara yfir karnival stemningu þessara balla og nostalgíuna. Spurningin um hver drap þennan tíma og afhverju verður ekki svarað en vangaveltur um dauðann og þennan tíma verða settar fram og í þær spáð
Útvarpsfréttir.
Halla Tómasdóttir verður sjöundi forseti Íslands. Hún hlaut örugga kosningu, rúm 34 prósent atkvæða. Hátt í 80 prósent kjósenda nýttu atkvæðisrétt sinn. Kjörsókn hefur ekki verið meiri í nærri þrjá áratugi.
Halla segist þakklát, stuðningurinn sé meiri en hún þorði að vona. Hún fékk umtalsvert meira fylgi en síðustu skoðanakannanir gáfu til kynna.
Landsmenn sem fréttastofa hitti í morgun voru almennt ánægðir með niðurstöður kosninganna.
Tveir ráðherrar í ríkisstjórn Ísraels hafa hótað að hætta ef forsætisráðherrann samþykkir vopnahlé áður en Hamas hefur verið upprætt. Slíkt myndi líklega leiða til falls ríkisstjórnarinnar.
Sjómannadeginum er fagnað um allt land í dag - Grindvíkingar halda daginn hátíðlegan í Reykjavík að þessu sinni.
Real Madrid varð í gærkvöldi Evrópumeistari í fótbolta í 15. sinn. Ekkert lið hefur unnið Meistaradeildina jafnoft og enginn þjálfari hefur stýrt liði jafnoft til titilsins og Carlo Ancelotti sem vann sinn fimmta titil sem þjálfari.
Friðrik Ómar Hjörleifsson hefur tekið við lyklavöldunum og má búast við að hann herði reglurnar innanhúss til muna. „Ég mun auðvitað sakna Sigga míns en tek glaður við húsvarðarstarfinu því ég sakna jafnvel enn meira að vera í sambandi við fólkið í landinu, spila hressandi tónlist og sleppa öllum leiðindum. Ég vil samt enga hlustendur sem eru í átaki eða megrun. Hér eru bara brauðtertur og uppáhellingur upp um alla veggi.” segir Friðrik Ómar.
Útvarpsfréttir.
Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Í þáttunum er eitt ár í íslenskri dægurlagtónlistarasögu tekið fyrir í einu frá árinu 1980 til 2020. Umsjónarmenn: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Það kemst enginn með tærnar þar sem Mugison hefur hælana, Sólstafir rokka í stinningskulda niðri í fjöru og Björk fer áfram ótroðnar slóðir í tónlistarsköpun. Lay Low syngur á íslensku á sinni þriðju plötu, Daníel Ágúst fer í bingó, Nýdönsk er í nánd og GusGus flokkurinn gefur út sína áttundu hljóðversplötu. Samstarfi Megasar og Senuþjófanna fylgir hugboð um vandræði, Magnús Þór og Páll Rósinkranz taka höndum saman og Hera Hjartardóttir skýtur upp kollinum. Ingó Veðurguð fær Fjallabræður til liðs við sig, Felix Bergsson syngur lög við ljóð Páls Ólafssonar, Bogomil Font & Hákarlarnir skoða dýrafræðin og Quarashi snýr aftur. Hljómsveitin Ég skoðar ímynd fíflsins, Valdimar Guðmundsson hittir Memfismafíunna í okkar eigin Osló og Hljómskálinn hefur göngu sína í sjónvarpi allra landsmanna.
Í þáttunum, Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum, eru helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu.
Meðal viðmælenda í öðrum hluta umfjöllunar um íslenska tónlistarárið 2011 eru Örn Elías Guðmundsson, Guðmundur Kristinn Jónsson, Birgir Þórarinsson, Daníel Ágúst Haraldsson, Bragi Valdimar Skúlason, Snorri Helgason, Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, Ragnar Þórhallsson, Valdimar Guðmundsson, Ásgeir Aðalsteinsson, Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, Björk Guðmundsdóttir, Ingólfur Þórarinsson, Aðalbjörn Tryggvason, Guðmundur Óli Pálmason og Felix Bergsson.
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Lagalisti:
Mugison - Haglél
Mugison - Stingum af
Mugison - Þjóðarsálin
Mugison - Góðan dag
Mugison - Kletturinn [Live @ Harpa]
Mugison - Áfall
Megas & Senuþjófarnir - Ekkert er andstyggilegra
Megas & Senuþjófarnir og Ágústa Eva - Lengi skal manninn reyna
Megas & Senuþjófarnir - Kúkur í flagi
Hera Hjartardóttir - Litre Of Me
Hera Hjartardóttir - Rattle My Bones
Gus Gus - Within You
Gus Gus - Over
Gus Gus - Deep Inside
Gus Gus - Arabian Horse
Bogomil Font & Hákarlarnir - Dýrafræðin
Páll Rósinkranz & Magnús Þór - Einu sinni
Quarashi - Beat’em
Mammút - Bakkus
FM Belfast & Jóhann Helgason - Feel So Fine
Of Monsters And Men + Snorri Helgason - Öll þessi ást
Valdimar & Magnús Eiríksson - Apinn í búrinu
Valdimar & Þorsteinn Einarsson - Ameríka
Sigríður Thorlacius & Valdimar Guðmundsson - Líttu sérhvert sólarlag
Lay Low - Horfið
Lay Low - Brostinn strengur
Lay Low - Vonin
Lay Low - Gleym mér ei
Björk & Ómar Ragnarsson - Þrjú hjól undir bílnum
Björk - Crystalline
Björk - Cosmogony
Björk - Virus
Ný Dönsk - Í nánd
Ný Dönsk - Umboðsmenn drottins
Daníel Ágúst - Yeah Yeah Yeah
Daníel Ágúst - Bingo
Daníel Ágúst - Snowflake
Ingó - Fanney
Ingó & Fjallabræður - Ertu ástfangin
Ingó & Katrína Mogensen - Með þér
Sextett Ólafs Gauks og Björn R. Einarsson - Því ertu svona uppstökk
Jónas Jónasson - Vor í Vaglaskógi
Ríó Tríó - Tár í tómið
Sólstafir - Æra
Sólstafir - Fjara
Sólstafir - Stinningskaldi
Sólstafir - Þín orð
Felix Bergsson - Sem hjörturinn þráir
Felix Bergsson - Vorljóð
Útvarpsfréttir.
Kvöldfréttir útvarps
Umsjón: Atli Már Steinarsson.
Fréttastofa RÚV.
Umsjón: Andrea Jónsdóttir.
Útvarpsfréttir.
Tónlistinn er vinsældalisti Íslands. Listinn er samantekt á mest spiluðu lögunum á útvarpsstöðvunum Bylgjunni, FM957, X-inu 977, Rás 2 og K100, sem og á streymisveitum. Listinn er unninn af Félagi hljómplötuframleiðenda og er á dagskrá Rásar 2 alla sunnudaga.
Umsjón: Helga Margrét Höskuldsdóttir.
Vinsælustu lögin á Íslandi vikuna 25. maí - 1. júní 2024.