Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Í spjalli um efnahag og samfélag sagði Þórður Snær Júlíusson m.a. frá nýju mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á stöðu efnahagsmála. Hún er þokkaleg og ætti að fara batnandi. Vaxtamál Neytendasamtakanna, mislukkað hlutafjárútboð Íslandshótela og sáttagreiðsla Björgólfs Thors voru líka á dagskrá.
Arthúr Björgvin Bollason sagði frá vandræðum forystumanna popúlistaflokksins AfD. Tveir efstu á lista til Evrópuþingsins hafa dregið sig í hlé frá kosningabaráttunni vegna yfirlýsinga er varða SS sveitir Nasistaflokksins. Hann talaði líka um muninn á Berlín og gömlu höfuðborg Vestur-Þýskalands Bonn.
Þegar útkall barst vegna rútuslyssins á Rangárvallavegi á laugardag fór af stað mikill viðbúnaður hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Sigurður Böðvarsson, framkvæmdastjóri lækninga, sagði frá störfunum þar þegar fjöldaslys verður í fjórðungnum.
Tónlist:
Lifiði og dó í Reykjavík - Mannakorn,
Hvernig hugsar þú þitt hverfula líf - Heiða Árnadóttir og Gunnar Gunnarsson,
Star of spring - Anna Gréta Sigurðardóttir,
Her house - Anna Gréta Sigurðardóttir.
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
5. júní rennur út umsóknarfrestur í flesta háskóla á landinu. Það getur verið snúið að finna út hvaða nám hentar manni best og við fengum Grétu Matthíasdóttur, forstöðukona nemendaráðgjafar Háskólans í Reykjavík, í þáttinn til að fara vítt og breitt yfir sviðið og hvernig hægt er að hjálpa nemendum að finna sína leið.
Gunnar Hersveinn, heimspekingur og rithöfundur, kom svo í þáttinn, en hann skrifaði pistil sem við rákumst á um umræðuhefðina sem skapast hefur hér á landi, og reyndar víða í öðrum löndum, þar sem stíllinn einkennist til dæmis af því að láta andstæðinginn, eða þann sem þú ert ósammála, fá það óþvegið. Að fólk með andstæðar skoðanir sé ekki að tala saman, heldur hafi meiri áhuga á að skamma hvert annað, hæðast að og grafa undan. Við ræddum þessa umræðuhefð við Gunnar í þættinum.
Að lokum kom Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur til okkar í veðurspjallið. Í dag sagði hann okkur frá miklum hitum sem hafa geysað undanfarnar vikur í Mexíkó. Mörg hitamet hafa fallið og sérstaklega heitar nætur. Dýr hafa drepist af hitaslagi og þurrkar fylgja og nú er óttast að vatn geti endanlega gengið til þurrðar í Mexíkóborg á næstu vikum. Svo rifjðuum við upp vorið í fyrra, en um þetta leyti gerði hret svo stórsá á trjágróðri. Nú er sem betur fer annað uppi á teningnum. Milt þessa daga, en spáð er kólnandi veðri, t.d. á kjördag. Að lokum sagði Einar okkur frá því hversu fáar mannaðar veðurstöðvar eftir í dag.
Tónlist í þættinum í dag:
Líf / Hildur Vala (Jón Ólafsson, texti Stefán Hilmarsson)
Almost Over You / Önnu Jónu Son (Haraldur Þorleifsson)
Óbyggðirnar kalla / KK & Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson)
Ferðabar / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Lögreglan á Vestfjörðum rannsakar andlát karls og konu í heimahúsi í Bolungarvík. Fólkið, sem er á sjötugsaldri, bjó saman en lögregla telur andlát ekki hafa borið að með saknæmum hætti.
Ísraelskir skriðdrekar óku inn í miðborg Rafah skömmu fyrir hádegi. Svo virðist sem allsherjarinnrás í borgina, sem lengi hefur vofað yfir, sé hafin.
Matvælaráðherra hefur óskað eftir frekari umsögnum um hvalveiðar og væntir þess að fá álit í næstu viku. Algjör óvissa er um hvalveiðivertíð sem alla jafna hefst í júní.
Á annað þúsund manns hafa kosið utan kjörfundar á Akureyri í aðdraganda forsetakosninga.
Kosningateymi Höllu Hrundar Logadóttur forsetaframbjóðanda baðst í morgun afsökunar á að hafa notað myndefni í óleyfi.
Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir og Hugi Guðmundsson tónskáld hafa verið tilefnd til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs
Guðlaug Edda Hannesdóttir, sem í gær fékk sæti í þríþraut á Ólympíuleikunum í París í sumar, segir þrálát meiðsli undanfarinna ára hafa styrkt sig í baráttunni um að komast á leikana. Hún trúi þessu þó varla enn þá.
Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.
Netverslun með áfengi hefur færst í vöxt. Hún byggir á einni af meginstoðum EES-samningsins - frjálsum vöruflutningi milli landa innan evrópska efnahagssvæðisins. Í skjóli samningsins geta verslanir í löndum utan Íslands, en innan svæðisins, selt áfengi í netverslun þrátt fyrir einkaleyfi ríkisins á smásölu í gegnum ÁTVR. Vegna einkaleyfisins mega netverslanirnar ekki vera skráðar hér á landi.
Íslenskar verslanir eins og Hagkaup eða Heimkaup geta því aðeins selt áfengi með því að stofna erlenda netverslun, en það er á aðeins gráu svæði hvort það telst erlend verslun ef lagerinn er í mekka íslenskrar verslunarmenningar - Skeifunni. Forsvarsmenn Hagkaups, Heimkaups, Costco, Sante, Nýju vínbúðarinnar og fleiri sem selja áfengi gegnum netið, telja engan vafa á að salan sé lögleg, segja jafnvel bara tímaspursmál hvenær innlend netverslun verður heimil.
En ráðherrar eru ekki sammála um hvort athæfið er löglegt eða ólöglegt. Þeir eru heldur ekki sammála um hvaða breytingar þurfi að gera á lögum. Endurskoðun löggjafar um áfengi hefur staðið til í nokkur ár, en lítið hefur gengið í að koma slíkum breytingum í gegnum þingið.
Eyrún Magnúsdóttir fjallar um grátt svæði í netverslun með áfengi og ræðir við Dóru Sif Tynes lögmann og sérfræðing í Evrópurétti.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Markmið Loftslagsdagsins, sem er árlegur viðburður, er að fjalla um loftslagsmál á mannamáli og í ár er einblínt á aðgerðir. Hér er spurt: hverjir eru að gera hvað núna? Hvað aðgerðir eru í pípunum og hvað ættum við að vera gera?
Við tölum við nokkur þeirra sem hafa haldið erindi og tekið þátt í umræðum hér í dag: Chanee Jónsdóttur Thianthong, sérfræðing hjá Umhverfisstofnun sem kynnti glænýjar tölur um losun Íslands. Eyrúnu Gígju Káradóttur, verkefnastjóra Orkuseturs, sem spurði í sínu erindi hvort við værum hætt við orkuskiptin, Björn Helga Barkarson skrifstofustjóra hjá Matvælaráðuneytinu en yfirskrift erindis hans var Loft, land og líf - og svo er það Hugrún Elvarsdóttir, verkefnastjóri hjá Samtökum atvinnulífsins sem ræddi um loftslagsvegvísa atvinnulífsins.
Tónlist:
Young, Neil, Nash, Graham, Crosby, Stills, Nash & Young, Crosby, David - Heartland.
KÁRI - Into The Blue.
MANNAKORN - Göngum yfir brúna.
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Una Sveinbjarnardóttir hefur spilað allskonar músík með allskonar tónlistarmönnum víða um heim, til að mynda með Björk Guðmundsdóttur, Rammstein, Mugison og Krystof Penderecki, svo dæmi séu tekin, er líka liðsmaður Strengjakvartettsins Sigga. Hún hefur líka verið iðin við tónsmíðar og hefur sérstakt dálæti á spuna.
Lagalisti:
Last Song before the News - Last Song before the News
Fyrramál - More Links
Umleikis - Quantum
South of the Circle - Opacity
South of the Circle - Elegia
Óútgefið - 7. ágúst
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Í þessum þætti les umsjónarmaður úr bókinni Sammdegisgestum þar sem Magnús F. Jónsson rekur æviminningar sínar, einkum frá æskudögum þegar fátækt íslenskt heimili þurfti að glima við harðindi, óveður og heyþurrð. Sannkallaðar rammíslenskar örlagasögur.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.
Um liðna helgi opnuðu tvær sýningar í Listval við Hverfisgötu, á bak við þær eru listamennirnir Helga Páley Friðþjófsdóttir og Hólmfríður Sunna Guðmundsdóttur. Sýning Hólmfríðar Sunnu kallast Púls og sýnir málverk þar sem efnið sjálft ræður för á ferð um hringrás náttúrunnar; himinn, jörð, plöntur, hold og kynjaverur og allskyns óvænt form birtast þar í mjúkum tónum og lífrænum formum. Hólmfríður er með bakgrunn í heimspeki og segir þau fræði vera samofin hennar myndlistarpælingum. Við lítum inn í Listval í þætti dagsins.
Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, verður einnig með okkur í dag og að þessu sinni fjallar hún um hnignun félagslegs húsnæðis á Íslandi.
Og við hugum líka að menntun í þættinum. Þjóðleikhúsið hefur sett á laggirnar nýjan leikhússkóla fyrir fólk á aldrinum 18-22 ára. Skólinn tekur til starfa í haust og inntökuferli hefst nú í maí. Við ræðum við skólastjórann og aðalkennara námsins, Völu Fannell, í þættinum.
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Menntaskólar landsins eru í óða önn að útskrifa nemendur í massavís um þessar mundir. En það sem fylgir þessum árstíma líka fyrir sum okkar, eru útskriftarafmælin, svokölluð menntaskóla-reunion, viðburðir þar sem heilu árgöngunum er boðið á stefnumót við fortíðina.
Helgi Grímur Hermannsson býr í fjölbýli og hann er formaður húsfélagsins. Hann er að velta fyrir sér mannlífi milli íbúða, nánd milli veggja.
Forsetaframbjóðendur voru beðnir, af Amtsbókasafninu á Akureyri, að mæla með bók. Steinunn Ólína mælti með Passíusálmunum, Katrín Jakobsdóttir með Bréfi til Láru eftir Þórberg. Baldur Þórhallsson valdi hins vegar barnabók eftir Astrid Lindgren, Bróðir minn Ljónshjarta. En hvaða merkingu hefur þetta? Hvernig má skilja þetta? Jóhannes Ólafsson, bókmenntafræðingur og þáttastjórnandi bókmenntaþáttar Rásar 1, Bara bækur, gerir tilraun til þess að greina listann.
Kvöldfréttir útvarps
Allsherjarinnrás í Rafah á Gaza, sem hefur vofað yfir vikum saman, gæti verið hafin. Utanríkisráðherra segir Ísland kalla eftir tafarlausu vopnahléi - sú afstaða stjórnvalda sé óbreytt.
Lögregla þurfti að brjótast inn í heimahús í Bolungarvík í gærkvöld þar sem hjón fundust látin. Ábending barst frá nágranna.
Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs, segir að alvarleg mistök hafi verið gerð þegar hagrænir hvatar á rafbílum voru felldir niður.
Áfengi og fíkniefni greindust hjá stýrimanni erlends flutningaskips sem hefur verið úrskurðaður í farbann, grunaður um að hafa hvolft strandveiðibát fyrr í maí.
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra hefur yfir hundrað sinnum beðið bílapartasölu á Akureyri að fjarlægja ökutæki úr bæjarlandinu. Í skoðun er að breyta reglum um bílastæði sveitarfélagsins.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Losun frá íslenska samfélaginu er enn þá á uppleið. Þetta sýna nýjar tölur sem kynntar voru á árlegum loftslagsdegi í Hörpu í dag. Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs, segir alvarleg mistök hafa verið gerð þegar felldir voru niður hagrænir hvatar á rafbílum.
Ísraelsher hefur nú drepið ríflega 36.000 manns á Gaza í hefndarstríði sínu vegna mannskæðs hryðjuverks vígasveita Hamas í Ísrael 7. október síðastliðinn. Um eða yfir 90 prósent hinna drepnu eru almennir borgarar, meirihlutinn konur og börn. Drápin halda áfram. Allsherjarinnrás í Rafah á Gaza, sem hefur vofað yfir vikum saman, gæti verið hafin.
Það er ekki hætta á að íslenska hverfi en frekar að hún hverfi úr ákveðnum kimum ef menn hætta að hugsa á íslensku segir formaður íslenskrar málnefndar.
Umsjón: Fríða María Ásbergsdóttir.
Í dag spjallar Fríða við konu sem hefur myndskreytt flestar af hennar uppáhalds bókum, svo gerði hún líka bókina um Vigdísi, fyrsta kvenforsetann. Þetta er engin önnur en Rán Flygenring og fara þær Fríða um víðan völl í spjalli sínu í Krakkakastinu. Þær ræða meðal annars íslenska hestinn, teikningar og myndlist, Vigdísi Finnbogadóttur og góð ráð fyrir krakka sem vilja verða teiknarar.
Viðmælandi: Rán Flygenring
Umsjón: Fríða María Ásbergsdóttir
Veðurstofa Íslands.
Dánarfregnir.
Hljóðritanir frá sumartónlistarhátíðum víðs vegar að úr Evrópu.
Hljóðritun frá tónleikum Mozarteum hljómsveitarinnar í Salzborg sem fram fóru á Salzborgarhátíðinni, 30. júlí s.l.
Á efnisskrá eru verk eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
Einleikari: Seong-Jin Cho píanóleikari.
Stjórnandi: Ivor Bolton.
Umsjón: Guðni Tómasson.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Markmið Loftslagsdagsins, sem er árlegur viðburður, er að fjalla um loftslagsmál á mannamáli og í ár er einblínt á aðgerðir. Hér er spurt: hverjir eru að gera hvað núna? Hvað aðgerðir eru í pípunum og hvað ættum við að vera gera?
Við tölum við nokkur þeirra sem hafa haldið erindi og tekið þátt í umræðum hér í dag: Chanee Jónsdóttur Thianthong, sérfræðing hjá Umhverfisstofnun sem kynnti glænýjar tölur um losun Íslands. Eyrúnu Gígju Káradóttur, verkefnastjóra Orkuseturs, sem spurði í sínu erindi hvort við værum hætt við orkuskiptin, Björn Helga Barkarson skrifstofustjóra hjá Matvælaráðuneytinu en yfirskrift erindis hans var Loft, land og líf - og svo er það Hugrún Elvarsdóttir, verkefnastjóri hjá Samtökum atvinnulífsins sem ræddi um loftslagsvegvísa atvinnulífsins.
Tónlist:
Young, Neil, Nash, Graham, Crosby, Stills, Nash & Young, Crosby, David - Heartland.
KÁRI - Into The Blue.
MANNAKORN - Göngum yfir brúna.
Heimildaskáldsaga eftir Björn Th. Björnsson. Guðmundur Ólafsson les.
Sagan gerist í Þingvallasveit á fyrri hluta nítjándu aldar, áður en tekið var að upphefja Þingvöll sem mesta helgistað landsins af skáldum og þjóðskörungum. Þá var Snorrabúð stekkur, eins og Jónas kvað.
Páll Þorláksson var prestur í Þingvallasókn. Hann þykist sjá að ekki sé allt samkvæmt kristilegum skikk á bænum Skógarkoti þar sem Kristján Magnússon fer með húsbóndavald. Ljóst þykir að eiginkona Kristjáns getur ekki verið móðir allra þeirra barna sem hann feðrar í sínum ranni. Hefjast út af þessu nokkrar væringar milli hins knáa húsbónda og Þingvallaklerks og má hið geistlega vald sín lengi vel næsta lítils í þeim viðskiptum.
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
5. júní rennur út umsóknarfrestur í flesta háskóla á landinu. Það getur verið snúið að finna út hvaða nám hentar manni best og við fengum Grétu Matthíasdóttur, forstöðukona nemendaráðgjafar Háskólans í Reykjavík, í þáttinn til að fara vítt og breitt yfir sviðið og hvernig hægt er að hjálpa nemendum að finna sína leið.
Gunnar Hersveinn, heimspekingur og rithöfundur, kom svo í þáttinn, en hann skrifaði pistil sem við rákumst á um umræðuhefðina sem skapast hefur hér á landi, og reyndar víða í öðrum löndum, þar sem stíllinn einkennist til dæmis af því að láta andstæðinginn, eða þann sem þú ert ósammála, fá það óþvegið. Að fólk með andstæðar skoðanir sé ekki að tala saman, heldur hafi meiri áhuga á að skamma hvert annað, hæðast að og grafa undan. Við ræddum þessa umræðuhefð við Gunnar í þættinum.
Að lokum kom Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur til okkar í veðurspjallið. Í dag sagði hann okkur frá miklum hitum sem hafa geysað undanfarnar vikur í Mexíkó. Mörg hitamet hafa fallið og sérstaklega heitar nætur. Dýr hafa drepist af hitaslagi og þurrkar fylgja og nú er óttast að vatn geti endanlega gengið til þurrðar í Mexíkóborg á næstu vikum. Svo rifjðuum við upp vorið í fyrra, en um þetta leyti gerði hret svo stórsá á trjágróðri. Nú er sem betur fer annað uppi á teningnum. Milt þessa daga, en spáð er kólnandi veðri, t.d. á kjördag. Að lokum sagði Einar okkur frá því hversu fáar mannaðar veðurstöðvar eftir í dag.
Tónlist í þættinum í dag:
Líf / Hildur Vala (Jón Ólafsson, texti Stefán Hilmarsson)
Almost Over You / Önnu Jónu Son (Haraldur Þorleifsson)
Óbyggðirnar kalla / KK & Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson)
Ferðabar / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Menntaskólar landsins eru í óða önn að útskrifa nemendur í massavís um þessar mundir. En það sem fylgir þessum árstíma líka fyrir sum okkar, eru útskriftarafmælin, svokölluð menntaskóla-reunion, viðburðir þar sem heilu árgöngunum er boðið á stefnumót við fortíðina.
Helgi Grímur Hermannsson býr í fjölbýli og hann er formaður húsfélagsins. Hann er að velta fyrir sér mannlífi milli íbúða, nánd milli veggja.
Forsetaframbjóðendur voru beðnir, af Amtsbókasafninu á Akureyri, að mæla með bók. Steinunn Ólína mælti með Passíusálmunum, Katrín Jakobsdóttir með Bréfi til Láru eftir Þórberg. Baldur Þórhallsson valdi hins vegar barnabók eftir Astrid Lindgren, Bróðir minn Ljónshjarta. En hvaða merkingu hefur þetta? Hvernig má skilja þetta? Jóhannes Ólafsson, bókmenntafræðingur og þáttastjórnandi bókmenntaþáttar Rásar 1, Bara bækur, gerir tilraun til þess að greina listann.
Útvarpsfréttir.
Matthías Már Magnússon og Hulda Geirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn með ljúfum tónum sem fara vel með fyrsta kaffibollanum.
Ýmislegt bendir til þess að fjöldi kjósenda sé enn óákveðinn þegar að kemur vali á næsta forseta Íslands. Hver veit nema sjómennsku þekking frambjóðenda auðveldi kjósendum valið. Í tilefni að sjómannadeginum á sunnudaginn næsta býður Aríel Pétursson formaður Sjómannadagsráðs frambjóðendum að spreyta sig á þrautum á borð við kanntu fisk að flaka og þekkirðu fiskinn? Hann kom í morgunkaffi.
Fjórða árið í röð heldur Páll Líndal og Golfklúbbur Mosfellsbæjar styrktarmótið Palli Open í golfi. Safna á fé til að standa að endurbótum á búningsklefum og séraðstöðu fyrir einstaklinga með miklar sérþarfir fyrir sundlaugina í Reykjadal þar sem starfræktar eru sumarbúðir í Mosfellsdal fyrir fötluð börn og ungmenni. Páll Líndal mætti til okkar.
Loftslagsdagurinn er í dag. Við ræddum stöðu mála við Auði H. Ingólfsdóttur, sviðsstjóra loftslagsmála og hringrásarhagkerfis hjá Umhverfisstofnun og Nicole Keller, teymisstjóri losunarbókhalds þar á bæ.
Heldum áfram að velta fyrir okkur framvindunni fyrir forsetakosningarnar. Flæðandi fylgi, síbreytilegar skoðanakannanir og líkindi ræddum við svo við Baldur Héðinsson stærðfræðing og höfund kosningaspa.is.
Kristján Hafþórsson, sem heldur úti hlaðvarpinu Jákastið, kom í heimsókn. Hann var að klára BA ritgerð sína í félagsfræði við Háskóla Íslands sem ber heitir Getum við verið jákvæðari? Með undirtitilinn “Jákvæð félagsfræði og áhrif fjórða valdsins á umræðu samfélagsins. Þetta er áhugavert ekki síst vegna þess að forsetakosningar eru á laugardaginn.
Og í lok þáttar kom Sævar Helgi Bragason og af gefnu tilefni ræddi hann sannleikinn um tunglferðirnar.
Helgi Björnsson - Besta útgáfan af mér
Daði Freyr - Whole Again
Travis - Gaslight
Warmland - Superstar minimal
Billie Eilish - Lunch
GDRN - Þú sagðir
Paramore - Ain't it fun
Alanis Morissette - Ironic
Hjartagosar á Rás 2 eru vinir í raun á besta tíma dagsins.
Tónlist, dægurmál, menning og íþróttir.
Hjartagosar á Rás 2, fyrir þig frá klukkan 9 alla virka daga.
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson og Andri Freyr Viðarsson.
Það var stakur gosi í dag sem þó lék á alls oddi! Jakob Frímann Magnússon heiðraði Andra með nærveru sinni og sagði frá tilvonandi tónleikum sínum á Listahátíð, Jack Magnet Science - Future Forecast .
Lagalisti þáttarins:
Brunaliðið - Ali Baba.
TRAVELING WILBURYS - Handle With Care.
Carpenter, Sabrina - Espresso.
FLEETWOOD MAC - Landslide.
Ngonda, Jalen - Illusions.
Cliff, Jimmy - I can see clearly now.
ARETHA FRANKLIN - I Say A Little Prayer.
TEARS FOR FEARS - Mad World.
Ágústa Eva Erlendsdóttir, SinfoniaNord - Dare to care.
WINGS - Let 'em In.
Daniil, USSEL, JóiPé, Króli - Sama stað (feat. USSEL & Daniil).
Óviti, Kusk og Óviti, KUSK - Loka augunum.
LAY LOW - Brostinn strengur.
RÍÓ - Dýrið Gengur Laust.
WILLIE NELSON - Bloody Mary Morning.
VÍNYLL - Hún Og Þær.
DEEE-LITE - Groove is in the heart.
ED SHEERAN & JUSTIN BIEBER - I Don't Care.
Offspring - Million miles away.
Grande, Ariana - We can't be friends (wait for your love).
DJ Shadow - You Played Me.
DAVID BOWIE - Ashes to ashes.
STUÐMENN - Það Jafnast Ekkert Á Við Jazz.
R.E.M. - Everybody Hurts.
Malen Áskelsdóttir - I don?t know what i saw in you.
JET BLACK JOE - You Can Have It All.
VISAGE - Fade to grey (80).
Hildur - Alltaf eitthvað.
Bubbi Morthens - Dansaðu.
USSEL, Króli, JóiPé - Radar (feat. USSEL).
THE PRETENDERS - Don't Get Me Wrong.
Ultraflex - Say Goodbye.
Lady GaGa - Poker Face.
MOTORHEAD - Ace of Spades.
Wallen, Morgan, Post Malone - I Had Some Help.
Kiriyama Family - About you.
Black Keys, The - Beautiful People (Stay High).
BARRY WHITE - Love?s Theme.
McRae, Tate - Greedy.
MUGISON - Stóra stóra ást.
M83 - Midnight City.
MERCURY REV - Opus 40.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Lögreglan á Vestfjörðum rannsakar andlát karls og konu í heimahúsi í Bolungarvík. Fólkið, sem er á sjötugsaldri, bjó saman en lögregla telur andlát ekki hafa borið að með saknæmum hætti.
Ísraelskir skriðdrekar óku inn í miðborg Rafah skömmu fyrir hádegi. Svo virðist sem allsherjarinnrás í borgina, sem lengi hefur vofað yfir, sé hafin.
Matvælaráðherra hefur óskað eftir frekari umsögnum um hvalveiðar og væntir þess að fá álit í næstu viku. Algjör óvissa er um hvalveiðivertíð sem alla jafna hefst í júní.
Á annað þúsund manns hafa kosið utan kjörfundar á Akureyri í aðdraganda forsetakosninga.
Kosningateymi Höllu Hrundar Logadóttur forsetaframbjóðanda baðst í morgun afsökunar á að hafa notað myndefni í óleyfi.
Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir og Hugi Guðmundsson tónskáld hafa verið tilefnd til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs
Guðlaug Edda Hannesdóttir, sem í gær fékk sæti í þríþraut á Ólympíuleikunum í París í sumar, segir þrálát meiðsli undanfarinna ára hafa styrkt sig í baráttunni um að komast á leikana. Hún trúi þessu þó varla enn þá.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson, Lovísa Rut Kristjánsdóttir og Matthías Már Magnússon.
Siggi og Lovísa sáu um stjórn Popplands í dag. Árni Matt mætti og fór undir yfirborðið og beint til Eþíópíu. Plata vikunnar á sínum stað, Scandipain vol. 1 og allskonar nýtt, m.a. frá K.Óla, Sölku Sól, Kött Grá Pjé og fleirum.
Hjálmar - Kindin Einar.
BOB MARLEY & THE WAILERS - Could You Be Loved.
Astatqé, Mulatu - Yèkèrmo Sèw.
UB40 - Red Red Wine.
MADNESS - House Of Fun.
Á móti sól - Djöfull er ég flottur.
METRONOMY - The Look.
Salka Sól Eyfeld - Sólin og ég.
Sharon Jones & The Dapkings - How Long Do I Have To Wait For You.
Fike, Dominic - 3 Nights.
KUSK - Sommar.
Dina Ögon - Jag vill ha allt.
ÁSDÍS - Angel Eyes.
Barry Can't Swim - Kimbara.
Retro Stefson - Kimba.
Lón - Hours.
RAVEN & RÚN - Handan við hafið.
Teddy Swims - The Door.
JONI MITCHELL - Big Yellow Taxi.
K.óla - Sex on a cloud.
Emilíana Torrini - Miss flower.
Snorri Helgason, Friðrik Dór Jónsson - Birta.
Ocean Colour Scene - The day we caught the train.
THE BLESSED MADONNA & THE JOY - Shades Of Love.
Jónfrí, Ólafur Bjarki Bogason - Gott og vel.
LAUFEY - From The Start.
Goofy Geese - Bam Bam.
MAGIC! - Rude.
THE THRILLS - Big Sur.
The Millenial Club - Feel the same.
Luke Combs - Fast Car.
Moses Hightower - Stutt skref.
Stella & Redinho - Charmed.
KENDRICK LAMAR - Not Like Us.
KÖTT GRÁ PJÉ & FONETIK SIMBOL - Dauði með köflum.
BILLIE EILISH - Lunch.
JÓIPÉ & KRÓLI - FOS (feat. USSEL)
BEYONCÉ - Ya Ya.
BIRNIR & PÁLL ÓSKAR - Spurningar.
JUSTICE & TAME IMPALA - Neverender.
HOZIER - Too Sweet.
KÁRI EGILSSON - In The Morning.
DINA ÖGON - Mormor.
SABRINA CARPENTER - Espresso.
Við fáum til okkar í Síðdegisútvarpið í dag Guðrúnu Karls Helgudóttur nýkjörinn biskup Íslands en hún sest niður með okkur hér strax að loknum fimm fréttum og við fáum okkur kaffibolla með henni á þessum tímamótum.
Það eru aðeins örfáir dagar þar til landsmenn mæta á kjörstað og kjósa sér nýjan forseta. Það lítur allt út fyrir að þetta verði mest spennandi forsetakosningar frá upphafi og við ætlum að fá þær Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur þingmann Viðreisnar og Ólöfu Skaftadóttur fyrrverandi ritstjóra Fréttablaðsins til okkar til að ræða frambjóðendurna, kosningabaráttuna og auðvitað möguleg kosningaúrslit.
Vegagerðin hefur boðið út hönnun borgarlínunnar eftir Suðurlandsbraut og Laugavegi en um er að ræða forhönnun á einum verkhluta og verkhönnun á alls sex verkhlutum. Við ætlum að heyra í Ásdísi Kristinsdóttur forstöðumanni verkefnastofu borgarlínu og fá hana til að skýra þetta út fyrir okkur, hvað þetta þýði, hvað felist í verkinu og hvernig svona útboð fari fram.
Bárður Örn Gunnarsson, framkvæmdastjóri Lava Center hefur ásamt öðrum ferðaþjónustuaðilum í Rangárþingi fundað með ráðamönnum þar um aðgerðir sem eiga að efla vetrarferðaþjónustu á svæðinu til framtíðar. Einnig er lagt upp með að þessi vinna geti einnig bætt lífskjör íbúa og stuðlað að hagræðingu í rekstri sveitarfélaganna. Bárður ætlar að koma til okkar í Síðdegisútvarpið á eftir og segja okkur betur frá þessum spennandi pælingum sem eru að eiga sér stað í Rangárþingi.
Í kvöld verður aðalfund Liverpoolklúbbsins á Íslandi haldinn í Minigarðinum og þar á meðal annars að kjósa nýjan formann. Við heyrum í fráfarandi formanni Braga Brynjarssyni og spyrjum hann aðeins út í þennan merka klúbb og þennan mikla áhuga landsmanna á Liverpool.
Við lásum um það í Morgunblaðinu í dag að ekki sé gert ráð fyrir nýjum þyrlupalli, hvort sem er á jörðu eða á þaki, í neinum drögum nýrrar viðbyggingar við Sjúkrahúsið á Akureyri, SAk, sem reisa á sunnan spítalans á lóðinni þar sem núverandi þyrlupallur er. Þetta hefur vakið upp einhverjar spurninga og og línunni hjá okkur er Hildigunnur Svavarsdóttir forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri.
Kvöldfréttir útvarps
Allsherjarinnrás í Rafah á Gaza, sem hefur vofað yfir vikum saman, gæti verið hafin. Utanríkisráðherra segir Ísland kalla eftir tafarlausu vopnahléi - sú afstaða stjórnvalda sé óbreytt.
Lögregla þurfti að brjótast inn í heimahús í Bolungarvík í gærkvöld þar sem hjón fundust látin. Ábending barst frá nágranna.
Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs, segir að alvarleg mistök hafi verið gerð þegar hagrænir hvatar á rafbílum voru felldir niður.
Áfengi og fíkniefni greindust hjá stýrimanni erlends flutningaskips sem hefur verið úrskurðaður í farbann, grunaður um að hafa hvolft strandveiðibát fyrr í maí.
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra hefur yfir hundrað sinnum beðið bílapartasölu á Akureyri að fjarlægja ökutæki úr bæjarlandinu. Í skoðun er að breyta reglum um bílastæði sveitarfélagsins.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Losun frá íslenska samfélaginu er enn þá á uppleið. Þetta sýna nýjar tölur sem kynntar voru á árlegum loftslagsdegi í Hörpu í dag. Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs, segir alvarleg mistök hafa verið gerð þegar felldir voru niður hagrænir hvatar á rafbílum.
Ísraelsher hefur nú drepið ríflega 36.000 manns á Gaza í hefndarstríði sínu vegna mannskæðs hryðjuverks vígasveita Hamas í Ísrael 7. október síðastliðinn. Um eða yfir 90 prósent hinna drepnu eru almennir borgarar, meirihlutinn konur og börn. Drápin halda áfram. Allsherjarinnrás í Rafah á Gaza, sem hefur vofað yfir vikum saman, gæti verið hafin.
Það er ekki hætta á að íslenska hverfi en frekar að hún hverfi úr ákveðnum kimum ef menn hætta að hugsa á íslensku segir formaður íslenskrar málnefndar.
Glæný íslensk tónlist úr ýmsum áttum.
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.
Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmaður: Þorsteinn Hreggviðsson.
Útvarpsfréttir.
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í haust er 21 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.
Rokkland í dag er að mestu helgað Laufey Lin Jónsdóttur sem hefur slegið í gegn um allan heim á eigin forsendum og að mestu heiman frá sér. Hún hlaut Grammy verðlaun sunnudaginn fyrir viku í flokknum Best Traditional Pop Vocal Album. Þau sem hafa hlotið þessi sömu verðlaun er fólk eins og Tony Bennet, Frank Sinatra, Joni Mitchell, Rod Stewart og Paul McCartney.
Laufey ólst upp í Reykjavík og Washington DC. Hún fór í Versló og þaðan til Berkeley school of music í Boston á skólastyrk. Hún útskrifaðist á netinu í Covid og sló svo í gegn á netinu með myndböndum sem hún póstaði á samfélagsmiðla. Hún býr í Los Angeles en er á leiðinni til Íslands til að spila þrjú kvöld í röð í Eldborg í mars, en þeir tónleikar eru liður í hátt í 100 tónleika-túr um Bandaríkin og Evrópu.
Halla Harðardóttir spjallaði við Laufey í desember fyrir þáttinn Undir álögum sem var á dagskrá Rásar 1 um jólin. Rokkland fékk góðfúslegt leyfi til að nota brot úr því viðtali í þátt vikunnar dagsins.
Joni Mitchell og fyrstu Grammy verðlaunin (1959) koma líka við sögu í dag.