Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Séra Arnór Bjarki Blómsterberg flytur.
Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Gliðnun í alþjóðasamstarfi í heimsfaraldrinum hefur verið til umfjöllunar eftir nýja skýrslu sem sýndi fram á að norrænu ríkin fóru í mörgu eigin leiðir í aðgerðum gegn veirunni án samstarfs eða samráðs sem einkennt hefur sambúð Norðurlandanna í áratugi. Viðmælandi í dag um heimsmálin var Stefanía Óskarsdóttir, dósent við stjórnmáladeild HÍ. Spurð hvernig heimurinn blasi við henni svaraði hún "skýjað með köflum."
Grasspretta hefur farið hægt af stað þetta vorið enda næturfrost víða um land langt fram eftir maí. Ljóst er að tún verða slegin seinna í ár en oft áður en erfitt að segja til um hvernig almennt heyjast í sumar. Bændur vilja rigningu. Eiríkur Loftsson ráðunautur í jarðrækt hjá Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins ræddi stöðu mála.
Einhverju furðulegasta leikári í langri sögu Leikfélags Reykjavíkur er að ljúka. Starfsemi leikhússins hefur, eins og svo að segja allt í samfélaginu, markast af lokunum löngum tíðum vegna covid. Brynhildur Guðjónsdóttir borgarleikhússstjóri spjallaði um áskoranir leikhússins og nýtt leikár sem hefst í haust.
Tónlist:
Here comes the sun - Bítlarnir
Sólin er komin - Mugison,
Þykjustuleikur - Gréta Sigurjónsdóttir,
Kisa mín - Helgi Hjörvar.
Umsjón: Björn Þór Sigbjörnsson og Þórhildur Þorkelsdóttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Ásrún Brynja Ingvarsdóttir
Tæknimaður: Magnús Þ. Magnússon
Útvarpsfréttir.
Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.
Gagga segir að það hafi ekkert annað komið til greina en að vinna við kvikmyndir, Hún segir frá kvikmynd sinni Saumaklúbburinn sem frumsýnd er um þessar mundir. Þetta er gamanmynd um fimm konur á besta aldri skella sér saman í bústað til að hafa það reglulega gott og slaka á - frjálsar frá sifelldu amstri hversdagsins. Undir huggulegu yfirborðinu leynast þó gamlar syndir sem leysast úr læðingi þegar síst varir.
Morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Kristján Kristjánsson.
Útvarpsfréttir.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Í dag er fimmtudagur og þá fengum við sérfræðing í þáttinn eins og aðra fimmtudaga í vetur. Í þetta sinn var það Guðrún Rakel Eiríksdóttir sálfræðingur og verkefnastjóri á sviði kortlagninga- og forvarna hjá VIRK starfsendurhæfingarsjóði. Hennar starf felst meðal annars í því að fara yfir beiðnir hjá fólki sem leitar til VIRK til þess að greina hvar vandinn liggur svo viðkomandi fái rétt úrræði, það er að segja að starfsendurhæfingarferillinn sé réttur fyrir viðkomandi. Þetta getur verið flókið, því skilgreiningar á hugtakinu kulnun eru til dæmis um 100 í erlendum rannsóknum. Hún segir að það sé mjög fjölbreyttur hópur sem leitar til VIRK vegna kulnunar í starfi, því skipti miklu að greina vanda hvers og eins rétt. Við fengum Guðrúnu Rakel til að útskýra þetta fyrir okkur betur í þættinum. Og í seinni hluta þáttarins svaraði hún spurningum sem hlustendur höfðu sent inn á netfang þáttarins, mannlegi@ruv.is.
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Útvarpsfréttir.
Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf. Fréttaskýringar, samtöl og umræður um það sem er efst á baugi.
Í fyrri hluta Hádegisins örskýrir Atli Fannar Bjarkason hina svokölluðu ?skæruliðadeild? Samherja, sem og Samherjamálið. Í örskýringum sínum tekur Atli fyrir flókin mál útskýrir þau á sem einfaldastan hátt. Samherjamálið? Skæruliðadeildin? Hvað er nú það.
Samtökin Transparency International, stærsta fjöldahreyfing í heiminum sem berst gegn spillingu og heldur spillingavísitölu sem greinir ásýnd spillingar, gaf í morgun út yfirlýsingu þar sem aðgerði hinnar svokölluðu skæruliðadeildar Samherja eru fordæmdar. Þar segir meðal annars að tölvupóstssamskipti sýni að Samherji hafi reynt að hafa áhrif formannskjör í blðamannafélagi Íslands og að Ísland hafi fallið um sex sæti á sérstökum lista samtakanna sem mælir spillingu í kjölfar umfjöllunar Kveiks árið 2019 um meintar greiðslur Samherja til ráðamanna í Angóla og Namibíu. Atli Þór Fanndal, formaður Íslandsdeildar Transparency International, ræðir um spillingu á Íslandi í síðari hluta þáttarins.
Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
Útvarpsfréttir.
Þrjú smit greindust innanlands í gær, eitt utan sóttkvíar. Sóttvarnalæknir segir nær öruggt að fleiri eigi eftir að greinast. Níu hafa greinst síðastliðna viku, flest tengd smitum í verslun í miðborginni.
Kínverjar lýsa vanþóknun á að Bandaríkjamenn séu á ný farnir að gera sér í hugarlund að COVID-19 megi rekja til kínverskrar rannsóknarstofu. Bandaríkjaforseti hefur fyrirskipað leyniþjónustustofnunum að komast að uppruna veirunnar.
Íslenskt almannatryggingakerfi á heimsmet í skerðingum, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Eflingar. Íslenskt velferðarkerfi er sagt ólíkt hinum Norðurlöndunum hvað þetta varðar.
Formaður fjárlaganefndar Alþingis útilokar ekki að hægt verði að samþykkja aukna fjárveitingu til hjúkrunarheimila í næsta mánuði til að mæta rekstrarvanda þeirra.
Draga má lærdóm af vandamálum sem fylgdu raka- og mygluskemmdum í Fossvogsskóla og grípa hraðar inn í mál af þessum toga, segir formaður skóla og frístundaráðs Reykjavíkur. Ekkert verður kennt í húsakynnum Fossvogsskóla á næsta ári.
Íslandsbanki ætlar að gefa Listasafni Íslands og og fleiri söfnum rúmlega 200 verk úr safni bankans, eftir helstu listamenn þjóðarinnar fyrr og síðar.
Landssamband smábátaeigenda leggur til að strandveiðimenn sem veiða umfram leyfilegan dagskammt geti leiðrétt það í næsta róðri. Verðmæti fyrir umframaflann renni í ríkissjóð og skerði heildarkvóta tímabilsins.
Dánarfregnir.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Þorsteinn Sigurðsson forstjóri Hafrannsóknarstofnunnar: Þorsteinn er nýtekinn við starfi forstjóra Hafrannsóknarstofnunnar. Hann segir frá bakgrunni sínum og eðli starfseminnar.
Gunnar Ólafsson, Djúpinu: Djúpið er frumkvöðlasetur eða -skjól sem staðsett er í Bolungavík. Hann ræðir m.a. um möguleika í þörungaeldi o.fl.
Stefán Gíslason: Umhverfispistill um áhrif loftslagsbreytinga á geðheilsu.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Í þættinum verður flutt tónlist sem tengist froskum, meðal annars kafli úr Froskakvartettinum eftir Joseph Haydn, Tilbrigði við lagið „A frog he went a-courting“ eftir Paul Hindemith og „Frog Galliard“ eftir John Dowland. Lesið verður upp úr sögunni „Kartan“ (Skrubtudsen) eftir H.C. Andersen. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Jórunn Sigurðardóttir.
Útvarpsfréttir.
Lísa Pálsdóttir flakkar um borg og bý.
Samræðufundur um húsnæðismál á vegum Úrbanistan var haldinn í Norræna húsinu þriðjudaginn 11.maí. Yfirskrift fundarins var HÍBÝLAAUÐUR, samtal um húsnæðismál á mannamáli. Þar bar ýmislegt á góma og meiningin er að reyna að koma efni fundarins til skila fyrir ykkur hlustendur góðir. Í þessum þætti verður rætt við Ásgeir Brynjar Torfason doktor í fjármálum, Hrefnu Björgu Þorsteinsdóttur & Hólmfríði Ósmann Jónsdóttur, arkitekta um rannsókn sem þær gerðu fyrir arkitektadeild Listaháskólans, er byrjum hjá Úrbanistan og hittum Önnu Maríu Bogadóttur arkitekt og menningarfræðing
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.
Í Víðsjá í dag verður meðal annars fjallað um hljómplötuna The Queen is Dead með ensku hljómsveitinni The Smiths en um þessar mundir eru 35 ár liðin frá útkomu hennar. Þetta var þriðja hljóðversplata hljómsveitarinnar og hún er mörgum talin vera ekki aðeins merkasta plata The Smiths, heldur ein af bestu plötum níunda áratugarins. Rætt verður við Kjartan Guðmundsson kennara og tónlistaráhugamann um plötuna í Víðsjá í dag. Víðsjá leggur einnig leið sína í Hafnarborg í Hafnarfirði og tekur þar tali myndlistarmanninn Arnfinn Amazeen en um helgina verður opnuð þar sýning hans sem Arnfinnur kallar Diskótek. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur heldur áfram að fjalla um mótsagnir í sögu og samtíð, í dag fjallar Halldór um endurminninguna, það hvernig okkur dreymir um veröld sem var ekki, gullöldina sem var ekki okkar.
Útvarpsfréttir.
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Það hafa margir beðið með eftirvæntingu eftir sérstökum Friends-endurfundaþætti sem kom út í dag. Vinir nutu áður óséðra vinsælda þegar þeir voru sýndir á árunum 1994 til 2004, og halda áfram að draga til sín nýja og nýja áhorfendur. Í Lestinni í dag veltum við fyrir okkur áhrifum og arfleifð Friendsþáttanna með Grétu Kristínu Ómarsdóttur, leikstjóra.
Ash Walker hefur getið sér gott orð í danstónlistarsenu Lundúna með því að blanda saman sál, jazz, rhythma & blús, og latínusmellum. Davíð Roach gunnarsson segir frá þessum taktvissa tónlistarmanni og plötusnúð í Lestinni í dag.
Við kíkjum svo á leiklistarnema sem undirbúa nú útskriftarsýningu sína, Krufning á sjálfsmorði nefnist verkið sem verður frumsýnt um helgina. Meira um það á eftir.
En við byrjum á emórappi.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Spegillinn 27. maí 2021
Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir
Hæstiréttur sýknaði Íbúðalánasjóð í dag í máli vegna uppgreiðslugjalda lána og ómerkti niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í öðru svipuðu máli. Rætt við Jónas Fr. Jónsson lögmann hjónanna sem þurfa að fara aftur með sitt mál til héraðsdóms.
Víðir Reynisson segir nýja rakningarappið auðvelda rakningu og fækka þeim sem þurfa að fara í sóttkví. Hann hvetur ungt fólk sem ætlar að djammið um helgina að hlaða appinu niður.
Frakklandsforseti viðurkenndi í dag þátt Frakka í þjóðarmorðinu í Rúanda fyrir 27 árum og baðst fyrirgefningar fyrir hönd þjóðarinnar.
Utanríkisráðherrar sjö helstu iðnríkja heims krefjast þess að yfirvöld í Hvíta-Rússlandi láti blaðamanninn og stjórnarandstæðinginn Roman Protasevich lausan án tafar og nokkurra skilyrða.
Mannabein sem rak á land í Vopnafirði og fundust fyrsta apríl síðastliðinn eru af skipverja sem féll fyrir borð á fiskiskipinu Erling KE-140 í maí í fyrra.
Mikill meirihluti vaktavinnufólks á Landspítalanum ætlar að auka við starfshlutfall sitt vegna styttingar vaktavinnu. Deildarstjóri segir að vegna styttingarinnar gæti orðið erfiðara að manna stöður í sumar. Arnar Páll Hauksson, ræddi við Helgu Sigurðardóttur, deildarstjóra mönnunar- og starfsumhverfisdeildar Landspítalans
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra telur að ekki liggi fyrir fullnægjandi greining á hvert fjárframlag ríkisins ætti að vera í rekstri hjúkrunarheimilanna. Þetta sagði hún á málþingi um greiningu á rekstrarkostnaði þeirra sem haldið var í dag. Einnig heyrist í Gylfa Magnússyni, prófessor við HÍ sem fór fyrir verkefnisstjórn um rekstur heimilanna og rætt við Aldísi Hafsteinsdóttur, formann Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hún segir að sveitarfélögin vilji að brugðist sé við skýrslu verkefnastjórnarinnar með fjármagni því að öðrum kosti verði ófremdarástand í þessum geira
Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir að teikn séu á loft um að landið sé að rísa í ferðaþjónustunni. Batamerki séu greinileg. Mestu máli skipti hverskonar ferða menn komi hingað. Þeir ferðamenn sem þegar eru búnir að bóka ferðir hingað ætli að dvelja hér lengur en í meðalári.
Hljómboxið eru stórskemmtilegir spurningaþættir fyrir alla fjölskylduna þar sem krakkar og foreldrar þeirra keppa í því að hlusta.
Við heyrum ýmis skemmtileg brot úr kvikmyndum og sjónvarpsþáttum, sturtusöngvarinn syngur fyrir okkur vel valin lög, við heyrum orð borin fram aftur á bak, reynum að greina dýrahljóð og skringilega útsett lög svo eitthvað sé nefnt.
Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir
Í dag er óvenjulegur þáttur í Hljómboxinu. Hvers vegna? Jú vegna þess að það eru engir keppendur í stúdíóinu. ÞIÐ eruð þátttakendurnir.
Myndið lið, finnið ykkur bjöllur eða aðra hljóðgjafa, búið til nafn á liðið ykkar, grípið blað og blýant og hlustið vel!
Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir
Leikarar og sturtusöngvarar: Rúnar Freyr Gíslason, Hera Ólafsdóttir og Karl Pálsson
Dánarfregnir.
Hljóðritun frá tvennum tónleikum
Sinfóníuhljómsveitar Íslands þar sem ungt tónlistarfólk var í forgrunni.
I: Frá tónleikum ungra einleikara 20. maí sl. þar sem fram komu sigurvegarar úr einleikarakeppni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Listaháskóla Íslands; þau Jóhanna Brynja Ruminy fiðluleikari, Jón Arnar Einarsson básúnuleikari og söngkonurnar Íris Björk Gunnarsdóttir og Marta Kristín Friðriksdóttir.
Á efnisskrá:
*Aríur og sönglög eftir Georges Bizet, Ruggero Leoncavallo, Giacomo Puccini, Wolfgang Amadeus Mozart, Giuseppe Verdi og Sigfús Einarsson.
*Fiðlukonsert eftir Felix Mendelssohn.
*Fantasía fyrir básúnu og hljómsveit eftir Paul Creston.
Stjórnandi: Anna-Maria Helsing.
II: Frá tónleikum Ung-Yrkju, tónskáldastofu Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Íslenskrar tónverkamiðstöðvar 23. apríl sl.
Á efnisskrá:
*Anemos eftir Ingibjörgu Elsu Turchi - frumflutningur.
*I Gave Him a Book (with only blank pages) eftir K.óla - frumflutningur.
*Guð er humar eftir Hjalta Nordal - frumflutningur.
Stjórnandi: Bjarni Frímann Bjarnason.
Kynnir: Elísabet Indra Ragnarsdóttir.
Hljóðritun frá tvennum tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands þar sem ungt tónlistarfólk var í forgrunni.
I: Frá tónleikum ungra einleikara 20. maí sl. þar sem fram komu sigurvegarar úr einleikarakeppni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Listaháskóla Íslands; þau Jóhanna Brynja Ruminy fiðluleikari, Jón Arnar Einarsson básúnuleikari og söngkonurnar Íris Björk Gunnarsdóttir og Marta Kristín Friðriksdóttir.
Á efnisskrá:
*Aríur og sönglög eftir Georges Bizet, Ruggero Leoncavallo, Giacomo Puccini, Wolfgang Amadeus Mozart, Giuseppe Verdi og Sigfús Einarsson.
*Fiðlukonsert eftir Felix Mendelssohn.
*Fantasía fyrir básúnu og hljómsveit eftir Paul Creston.
Stjórnandi: Anna-Maria Helsing.
Kynnir: Guðni Tómasson.
II: Frá tónleikum Ung-Yrkju,tónskáldastofu
Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Íslenskra tónverkamiðstöðvar 23. apríl sl.
Á efnisskrá:
*Anemos eftir Ingibjörgu Elsu Turchi - frumflutningur.
*I Gave Him a Book (with only blank pages) eftir K.óla - frumflutningur.
*Guð er humar eftir Hjalta Nordal - frumflutningur.
Stjórnandi: Bjarni Frímann Bjarnason.
Kynnir: Elísabet Indra Ragnarsdóttir.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Þorsteinn Sigurðsson forstjóri Hafrannsóknarstofnunnar: Þorsteinn er nýtekinn við starfi forstjóra Hafrannsóknarstofnunnar. Hann segir frá bakgrunni sínum og eðli starfseminnar.
Gunnar Ólafsson, Djúpinu: Djúpið er frumkvöðlasetur eða -skjól sem staðsett er í Bolungavík. Hann ræðir m.a. um möguleika í þörungaeldi o.fl.
Stefán Gíslason: Umhverfispistill um áhrif loftslagsbreytinga á geðheilsu.
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Það hafa margir beðið með eftirvæntingu eftir sérstökum Friends-endurfundaþætti sem kom út í dag. Vinir nutu áður óséðra vinsælda þegar þeir voru sýndir á árunum 1994 til 2004, og halda áfram að draga til sín nýja og nýja áhorfendur. Í Lestinni í dag veltum við fyrir okkur áhrifum og arfleifð Friendsþáttanna með Grétu Kristínu Ómarsdóttur, leikstjóra.
Ash Walker hefur getið sér gott orð í danstónlistarsenu Lundúna með því að blanda saman sál, jazz, rhythma & blús, og latínusmellum. Davíð Roach gunnarsson segir frá þessum taktvissa tónlistarmanni og plötusnúð í Lestinni í dag.
Við kíkjum svo á leiklistarnema sem undirbúa nú útskriftarsýningu sína, Krufning á sjálfsmorði nefnist verkið sem verður frumsýnt um helgina. Meira um það á eftir.
En við byrjum á emórappi.
Næturútvarp Rásar 1.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir og Rúnar Róbertsson.
Þinn garður, Þín kolefnisbinding er átaksverkefni Félags garðplöntuframleiðenda í samstarfi við Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið. Markmið verkefnisins er að auka áhuga, þekkingu og þátttöku almennings á ræktun gróðurs með tilliti til kolefnisbindingar og þar geta allir lagt sitt til. Erla Hjördís Gunnarsdóttir verkefnisstjóri kíkti til okkar og sagði okkur meira af þessu.
Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur leit svo við í sínu vikulega málfarsspjalli og sagði frá orðaneti Árnastofnunnar.
Yfirstandandi bólusetningar munu ekki nægja til að stöðva yfirstandandi bylgju Covid faraldursins í Bandaríkjunum, samkvæmt niðurstöðum rannsókna sem vísindamenn við Háskólann í Reykjavík tóku þátt í ásamt fleirum. Nauðsynlegt er að viðhalda áfram ströngum reglum um fjarlægð milli einstaklinga og öðrum sóttvarnarráðstöfunum til að stöðva faraldurinn og koma í veg fyrir nýja bylgju. Anna Sigríður Islind og María Óskarsdóttir lektorar við tölvunarfræðideild HR komu að rannsókninni þar sem m.a. var stuðst við gögn um flugumferð. Hvernig í ósköpunum virkar það og hvernig tengist það Covid-19? Þær stöllur komu til okkar og fóru yfir þetta.
Þórsteinn Ragnarsson forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastdæma kom til okkar að loknum áttafréttum og ræddi takmarkanir á bálförum og fleira er lýtur að rekstri kirkjugarðanna.
Gunnar Helgason hlýtur að teljast til afkastamestu rithöfunda þjóðarinnar og í dag kemur út eftir hann bókin Palli Playstation, sem er fimmta bókin í bókaflokknum um Mömmu klikk og hennar fylgifiska. Bækur hans njóta mikilla vinsælda og toppa lista yfir hljóðbókalestur þessi misserin. Alltaf líf og fjör í kringum Gunnar og við fengum smá orkuskammt frá honum inn í daginn.
Tónlist:
Ragnheiður Gröndal - Flowers in the morning.
Sycamore tree - Picking fights and pulling guns.
Al Green - Im so tired of being alone.
Stjórnin - Allt eða ekkert.
Tómas Welding - Here they come.
U2 - Trip through your wire.
Ellen Kristjánsdóttir og John Grant - Veldu stjörnu.
Selma Björns - Undir stjörnum.
Helgi Björns - Ekki ýkja flókið.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Ásrún Brynja Ingvarsdóttir
Tæknimaður: Magnús Þ. Magnússon
Útvarpsfréttir.
Morgunverkin er fyrst og fremst tónlistarþáttur þar sem Þórður Helgi spilar bara það besta sem heimurinn hefur alið af sér síðustu 30-40 árin.
Morgunverkin 27. maí 2021
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson
Úlfur Úlfur - Tarantúlur
Saint Motel - Feel good
Stefán Hilmarsson - Heimur allur hlær
Babies - Núní júní
Pharrell - Happy
Maneskin - Zitti e buoni
Todmobile - Ég vil brenna
Skee-lo - I wish
Natalie Imbruglia - Wishing I was there
Bjarni Ara - Þegar sólin sýnir lit
Steven WIlson - Anyone but me
Celeste - Tonigh tonight
Rolling stones
10:00
BSÍ - Vesturbæjar beach
A tribe called quest - Can I kick it
Manfred mann - Blinded by the lights
Bono, Edge og Martin Garrix - We are the people
Emmsjé Gauti & Helgi Sæmundur - Tossi
Scarlet Pleasure - What a life
Shaggy - Boomastic
KK - Þetta lag er um þig
Ini Kamoze - Here comes the hotstepper
Gjon?s tear - Tout I?univers
Emotions - Best of my love
Gary Numan - Saints and liars
Beatles - Blackbird
Ligths on the highway - A little bit of everything
11:00
Upplýsingafundur Almannavarna
Flott - Mér er drull
Killers - When we were young
GusGus - The rink (Plata vikunnar - Mobile home)
Little Simz - Introvert
Sycamore tree - Heart melodies
Írafár - Stórir hringir
12:00
SigurRós - Sæglópur (Klambratún 30.07.2006)
Sigurður Guðmundsson - Kappróður
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Þrjú smit greindust innanlands í gær, eitt utan sóttkvíar. Sóttvarnalæknir segir nær öruggt að fleiri eigi eftir að greinast. Níu hafa greinst síðastliðna viku, flest tengd smitum í verslun í miðborginni.
Kínverjar lýsa vanþóknun á að Bandaríkjamenn séu á ný farnir að gera sér í hugarlund að COVID-19 megi rekja til kínverskrar rannsóknarstofu. Bandaríkjaforseti hefur fyrirskipað leyniþjónustustofnunum að komast að uppruna veirunnar.
Íslenskt almannatryggingakerfi á heimsmet í skerðingum, að því er fram kemur í nýrri skýrslu Eflingar. Íslenskt velferðarkerfi er sagt ólíkt hinum Norðurlöndunum hvað þetta varðar.
Formaður fjárlaganefndar Alþingis útilokar ekki að hægt verði að samþykkja aukna fjárveitingu til hjúkrunarheimila í næsta mánuði til að mæta rekstrarvanda þeirra.
Draga má lærdóm af vandamálum sem fylgdu raka- og mygluskemmdum í Fossvogsskóla og grípa hraðar inn í mál af þessum toga, segir formaður skóla og frístundaráðs Reykjavíkur. Ekkert verður kennt í húsakynnum Fossvogsskóla á næsta ári.
Íslandsbanki ætlar að gefa Listasafni Íslands og og fleiri söfnum rúmlega 200 verk úr safni bankans, eftir helstu listamenn þjóðarinnar fyrr og síðar.
Landssamband smábátaeigenda leggur til að strandveiðimenn sem veiða umfram leyfilegan dagskammt geti leiðrétt það í næsta róðri. Verðmæti fyrir umframaflann renni í ríkissjóð og skerði heildarkvóta tímabilsins.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson, Lovísa Rut Kristjánsdóttir og Matthías Már Magnússon.
Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir
Góð stemning í Popplandi dagsins, alls konar tónlist úr ýmsum áttum. Kristín Sesselja og Benni Hemm Hemm kíktu í heimsókn og plata vikunnar var á sínum stað, ný plata frá Gus Gus sem heitir Mobile Home og plata dagsins er ný plata The Black Keys, Delta Kream.
Írafár - Fáum Aldrei Nóg
MGMT - Electric Feel
BSÍ - Vesturbæjar Beach
DJ Jazzy Jeff - Summertime
Ari Árelíus - Aprikósur
Grýlurnar - Maó Gling
Sad Night Dynamite - Krunk
Kristín Sesselja - Perfect For Me
Kings of Convenience - Rocky Trail
Kiriyama Family - Pleasant Ship
Emmsjé Gauti & Helgi Sæmundur - Tossi
Benni Hemm Hemm - 3000
GusGus - Flush
Bombay Bicycle Club - Always Like This
Hipsumhaps - Á Hnjánum
SIster Sledge - He?s The Greatest Dancer
Emilíana Torrini - Sunny Road
Á Móti Sól - Sæt
Vök - Lost In The Weekend
Christina Aguilera - Genie In A Bottle
Tkay Maizda - Syrup
Tómas Welding - Here They Come
Duran Duran - Wild Boys
St. Vincent - Down
David Bowie - Young Americans
Kaleo - Hey Gringo
The Black Keys - Crawling Kingsnake
Helgi Björns - Ekki Ýkja Flókið
Bubbi Morthens - Ástrós
Quarashi - Baseline
Maneskin - Zitti E Buoni
Celeste - Tonight Tonight
Sigur Rós - Hoppípolla (Klambratún 2006)
Scarlet Pleasure - What A Life
Zara Larsson - Talk About Love
Gus Gus - Simple Tuesday
Go A - Shum
Pretty Purple - Don?t Think About It
FM Belfast - Par Avion
Daði & Gagnamagnið - 10 Years (Chromeo remix)
Spilverk Þjóðanna - Sirkus Geira Smart
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Þau Valur Grettisson, Guðrún Dís Emilsdóttir og Hrafnhildur Halldórsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu á daginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Það má segja að fyrrverandi aðalráðgjafi Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands -Dominic Cummings - hafi varpað sprengju, ef ekki sprengjum, inn í breska pólitík. Hann lét dæluna ganga á 7 klukkutíma löngum fundi með breskum þingmönnum í gær. Hann segir að forsætisráðherran sé vanhæfur og hafi gert lítið úr faraldrinum með þeim afleiðingum að tugir þúsunda hafi látist að óþörfu. Cummings segist hafa heyrt Johnson segja að hann vildi frekar sjá líkin hrannast upp en fara í harðar ráðstafanir með algerum lokunum í þriðja sinn. Þá hafi ríkisstjórnin verið algerlega óundirbúin til að takast á við faraldurinn. En hver er Dominic Cummings og hvað þýðir þetta fyrir Johnson og framtíð ríkisstjórnarinnar? Eiríkur Bergmann Einarsson prófessor í stjórnmálafræði ætlar að greina þetta mál með okkur.
Synir listamannsins Braga Ásgeissonar ætla að fagna afmæli Braga á morgun, en þá yrði Bragi 90 ára. Þeir ætla að heiðra minningu föður síns með sýningu á verkum Braga í Sundaborg 3. Ekki nóg með það því gestum gefst einnig einstakt tækifæri til að fá að líta inn í vinnuaðstöðu Braga, sem er algerlega óhreyfð frá því hann gekk þar út í síðasta skiptið árið 2016. Vinnustofan er í Austurbrún 4 á 13.hæð. Síðdegisútvarpið hitti einn af sonum Braga, hann Fjölni Geir Bragason, sem sagði okkur allt um sýninguna.
Getur þráðlausa netið mitt skaðað nágranna mína? Og er til fólk með rafsegulóþol? Þessum spurningum svarar Jónína Guðjónsdóttir lektor í geislafræði við Háskóla Íslands á Vísindavefnum. Hún kemur til okkar.
Við verðum meira á menningarlegum nótum í þættinum því sjálfur Þórhallur Sigurðsson eða Laddi ætlar að koma til okar og segja okkur frá nýrri sýningu. Nei það er ekki sýningin Laddi 74 ára á stóra sviðinu, þetta er málverkasýning.
Veðrið hefur leikið við landann í dag og margir notið blíðunnar utandyra. Grasagarðurinn er vinsæll staður á svona dögum og þangað fór Gígja Hólmgeirsdóttir. Hún spjallaði við Björk Þorleifsdóttur um starfsemina í garðinum.
Nýtt úrræði fyrir börn í vanda heitir Vopnabúrið og er það hugarfóstur Björns Más Sveinbjörnssonar Brink. Vopnabúrið er einka líkamsræktarstöð sem veitir fjölbreytta þjónustu fyrir börn og unglinga með fjölþættan vanda þar sem þeim er mætt þar sem þau eru stödd hverju sinni. Björn verður á línunni.
Útvarpsfréttir.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Spegillinn 27. maí 2021
Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir
Hæstiréttur sýknaði Íbúðalánasjóð í dag í máli vegna uppgreiðslugjalda lána og ómerkti niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í öðru svipuðu máli. Rætt við Jónas Fr. Jónsson lögmann hjónanna sem þurfa að fara aftur með sitt mál til héraðsdóms.
Víðir Reynisson segir nýja rakningarappið auðvelda rakningu og fækka þeim sem þurfa að fara í sóttkví. Hann hvetur ungt fólk sem ætlar að djammið um helgina að hlaða appinu niður.
Frakklandsforseti viðurkenndi í dag þátt Frakka í þjóðarmorðinu í Rúanda fyrir 27 árum og baðst fyrirgefningar fyrir hönd þjóðarinnar.
Utanríkisráðherrar sjö helstu iðnríkja heims krefjast þess að yfirvöld í Hvíta-Rússlandi láti blaðamanninn og stjórnarandstæðinginn Roman Protasevich lausan án tafar og nokkurra skilyrða.
Mannabein sem rak á land í Vopnafirði og fundust fyrsta apríl síðastliðinn eru af skipverja sem féll fyrir borð á fiskiskipinu Erling KE-140 í maí í fyrra.
Mikill meirihluti vaktavinnufólks á Landspítalanum ætlar að auka við starfshlutfall sitt vegna styttingar vaktavinnu. Deildarstjóri segir að vegna styttingarinnar gæti orðið erfiðara að manna stöður í sumar. Arnar Páll Hauksson, ræddi við Helgu Sigurðardóttur, deildarstjóra mönnunar- og starfsumhverfisdeildar Landspítalans
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra telur að ekki liggi fyrir fullnægjandi greining á hvert fjárframlag ríkisins ætti að vera í rekstri hjúkrunarheimilanna. Þetta sagði hún á málþingi um greiningu á rekstrarkostnaði þeirra sem haldið var í dag. Einnig heyrist í Gylfa Magnússyni, prófessor við HÍ sem fór fyrir verkefnisstjórn um rekstur heimilanna og rætt við Aldísi Hafsteinsdóttur, formann Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hún segir að sveitarfélögin vilji að brugðist sé við skýrslu verkefnastjórnarinnar með fjármagni því að öðrum kosti verði ófremdarástand í þessum geira
Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir að teikn séu á loft um að landið sé að rísa í ferðaþjónustunni. Batamerki séu greinileg. Mestu máli skipti hverskonar ferða menn komi hingað. Þeir ferðamenn sem þegar eru búnir að bóka ferðir hingað ætli að dvelja hér lengur en í meðalári.
Glæný íslensk tónlist úr ýmsum áttum.
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.
Það er nóg að frétta í innlendri útgáfu þessa dagana eins og endranær og við fáum brakandi fersk lög frá þeim Sin Fang, Sóleyju og Örvari Smárasyni sem halda áfram að gefa út eitt lag í mánuði. Önnur með nýtt eru þau Ragnheiður Gröndal og Guðmundur Pétursson, Ezekiel Carl, Babies, Heró, Ari Árelíus, Kvika, Teiti og Mr Silla.
Lagalistinn
Sin Fang, Sóley og Örvar Smárason - Shame
Ezekiel Carl - Bara þig
Babies - Núna í júní
Heró - Follow Me
Ari Árelíus - Apríkósur
Kvika - Fever
Teitur og Mr Silla - Háfjöllin
Ragnheiður Gröndal og Guðmundur Pétursson - Svar
Fréttastofa RÚV.
Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir Rásar 2 í EBU bjóða upp á.
Hljómsveitin Sigur Rós hlaut á dögunum heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir framlag sitt til íslensk menningarlífs, og af því tilefni ætlum við í Konsert vikunnar að bjóða upp á upptöku frá tónleikum Sigur Rósar frá Klambratúni sunnudagskvöldið 30. júlí árið 2006.