
Vikulokin
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson.
Kafað verður í fréttamál vikunnar í Vikulokunum sem eru á sínum stað í útvarpi og á vef strax á eftir fréttum klukkan 11:00.
Í fyrsta hluta þáttarins verður rætt um stöðuna í stjórnmálunum, vistaskipti Ingvars Þóroddssonar og náttúru- og innviðagjald. Þar eru gestir Eiríkur Björn Björgvinsson þingmaður Viðreisnar og Ingveldur Anna Sigurðardóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Í öðrum hluta ræða Halla Gunnarsdóttir formaður VR og Páll Pálsson fasteignasali stýrivaxtaákvörðun, húsnæðismarkaðinn og fjárlög.
Geir Sigurðsson, prófessor í kínverskum fræðum og Rósa Magnúsdóttir, prófessor í sagnfræði, eru gestir í þriðja hluta þáttarins. Þar verður fjallað um fund leiðtoga Rússlands, Kína og Bandaríkjanna.

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson.