Það skilur mig enginn jafn vel og þú!
Dóra og Símon, samfélagslögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu, vita vel að flest samskipti á samfélagsmiðlum og í tölvuleikjum ganga vel. Þó verður alltaf að vera vakandi fyrir rauðum…
Dóra og Símon, samfélagslögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu, vita vel að flest samskipti á samfélagsmiðlum og í tölvuleikjum ganga vel. Þó verður alltaf að vera vakandi fyrir rauðum flöggum í stafrænum samskiptum. Myndbandið er fræðslumyndband sem RÚV og Jafnréttisskóli Reykjavíkur framleiddu í tilefni af Viku6 2026.

Vika6 er kynheilbrigðisátak sem haldið er í sjöttu viku hvers árs. Þá er kynfræðsla sett í forgrunn í skóla- og frístundastarfi. Unglingar kjósa um þema hverju sinni og fá að hafa bein áhrif á inntak og framkvæmd vikunnar. Jafnréttisskóli Reykjavíkur stýrir Viku6.
Í Viku 6 er rætt er við skemmtilegt fólk um kynheilbrigði.