Fyrri hluti
Fjallað er um upphaf tæknivæðingar á Íslandi. Sagan hefst um aldamótin 1900 þegar fyrstu íslensku verkfræðingarnir skila sér heim úr námi. Landið er nær óskrifað blað og verkfræðingarnir…
Fjallað er um tæknivæðingu á Íslandi eftir miðbik 20. aldar þegar Íslendingar höfðu öðlast þekkingu og þor til að ráðast í stærri framkvæmdir. Stofnun Landsvirkjunar markaði upphaf stóriðju á Íslandi og tæknivæðing hóf innreið sína í íslenskum sjávarútvegi. Við tók tímabil mikilla tækniframfara og nýjunga sem Íslendingar voru fljótir að tileinka sér.

Heimildarmynd frá 2024 í tveimur hlutum þar sem fjallað er um tækniframfarir og sögu verkfræði á Íslandi. Sagan hefst í upphafi 20. aldar þegar þjóðin steig sín fyrstu skref til tæknivæðingar. Þar með hófst eitt mesta umbreytingaskeið Íslandssögunnar þar sem þjóðin fór frá vanefnum til velfarnaðar á nær öllum sviðum mannlífsins. Leikstjórar: Adrian Freyr Rodriguez og Einar Kári Jóhannsson.