Ingólfur Snær Víðisson
Þegar Ingólfur Snær Víðisson var fjórtán ára hafði hann misst báða foreldra sína og var í umsjá barnaverndaryfirvalda. Unglingsárunum eyddi hann að mestu á fósturheimilum og úrræðum…
Þegar Ingólfur Snær Víðisson var fjórtán ára hafði hann misst báða foreldra sína og var í umsjá barnaverndaryfirvalda. Unglingsárunum eyddi hann að mestu á fósturheimilum og úrræðum á vegum barnaverndaryfirvalda þar til hann var dæmdur í fangelsi 17 ára gamall. Rúmlega tvítugur sneri hann við blaðinu og vinnur nú við að hjálpa hinum ýmsu jaðarsettu hópum. Við fylgjum Ingólfi eftir í starfi hans í fangelsi og fáum að heyra hans mögnuðu sögu.

Viðtalsþáttur þar sem Viktoría Hermannsdóttir spjallar við áhugavert fólk á einlægum nótum og fær að heyra alls konar sögur. Dagskrárgerð: Fannar Scheving Edwardsson og Viktoría Hermannsdóttir.