21. þáttur
Hjálpfús er að leysa Björgvin Franz af, hann byrjar á að kynna tákn dagsins en það er einmitt Rauði krossinn. Anna og Ragnar gömlu vinir Hjálpfúsar kíkja í heimsókn.
Björgvin er með tannpínu í dag en tákn dagsins er einmitt tönn og tannpína, Björgvin fjallar um tennur með hjálp Spegils Speglagrímssonar. Hann býður svo fyrstu gesti þáttarins velkomna en það eru fimm hressir krakkar sem ætla að fara á stúfana fyrir Stundina okkar í vetur, þau Eva Þóra Hartmannsdóttir, Hinrik Snær Guðmundsson, Ísak Ernir Róbertsson, Svanhildur Sverrisdóttir og Sædís Jónasdóttir.
Aðalgestur þáttarins er Birgitta Haukdal.
Stundin okkar 2008.10.12 : 2. Þáttur

Umsjón: Björgvin Franz Gíslason
Dagskrárgerð: Eggert Gunnarsson