Illmennið
Bolli og Bjalla rekast á þann sem hefur verið að fela galdrabókina fyrir þeim. Tekst þeim að sannfæra hann um að gefa þeim bókina svo þau geti óskað sér að Stundin okkar sé til?
Bolli og Bjalla eyða Stundinni okkar úr manna minnum og þurfa að leggjast á eitt til að koma í veg fyrir að hún gleymist að eilífu.
Þau ferðast í gegnum sögu Stundarinnar okkar og hitta þar fyrrverandi þáttastjórnendur, þá Gunna og Felix, Björgvin Franz, Sigyn Blöndal, Flakkarann og fleiri góðkunningja.
Ætli Bolla og Bjöllu takist að bjarga Stundinni okkar fyrir jól eða ætli þau eyði jólunum líka?