Vissir þú að geimverur áttu að lenda á Snæfellsjökli árið 1995? Við ætlum að fara til Ólafsvíkur, sem er bær á Snæfellsnesi og hitta þar spekinga tvo og fara yfir það mál allt saman og líka smá jarðfræði í leiðinni. Hvað er heitur reitur? Hvað eru flekaskil? Fer Ísland einhverntímann í tvennt? Við ætlum líka að læra 5 TRIX til þess að búa til dans. Á hverju byrjar maður? Þau Inga Maren og Ásgeir Helgi ætla að kenna okkur að dansa. Við búum til farartæki í Kveikt á perunni! En ætli við getum notað þau í lokin - það kemur í ljós, kannski ferðumst við aftur í tímann - hver veit? En eitt er víst að keppnin hefur aldrei verið meira spennandi.