3. desember 2005
Gestaleikkonan Edda Arnljótsdóttir slæst í hópinn þegar Spaugstofan tekur fyrir jólastressið – með jólaeftirliti á heimilum, föndri úr pitsu og jólagjöfum sem enda stundum á bráðamóttökunni.

Leikararnir Karl Ágúst, Pálmi, Randver, Sigurður og Örn túlka atburði líðandi stundar eins og þeim einum er lagið. Stjórn upptöku: Björn Emilsson.