Fyrirmyndarmenntun
Oliver Cowie er þekktur kennari, ástríkur eiginmaður og fjölskyldufaðir og gæðablóð í alla staði - en þegar hann finnst myrtur taka alls kyns óþverramál að fljóta upp á yfirborðið…
Breskur spennumyndaflokkur um rannsóknarlögreglumanninn Max Arnold sem býr í gömlum húsbáti en starfar í einu efnaðasta hverfi Lundúna. Þó ekki skorti auðæfin í Chelsea er þar engu að síður nóg um morð og önnur myrkraverk. Aðalhlutverk: Adrian Scarborough, Peter Bankolé og Lucy Phelps. Myndirnar eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Myndirnar eru hluti af þemanu Sakamálasumar.