Tölvuskrímslið
Tara tölvuskrímsli er pínulítil tölvuleikjaóð vera. Hún nærist á þungu lofti og svita og það besta sem hún veit eru innipúkar sem hanga í tölvuleikjum. Þegar hennar versti óvinur,…
Þegar litlir stubbar fá hiksta hringir lítil bjalla í húsi Hikstaskrímslisins. Þá stekkur hann af stað, fer í freyðibað og lagar þannig hikstann. Eins gott að hann festist ekki í of þröngri peysu og komist þar af leiðandi ekki í bað!

Serían gerist í litríkum og súrsætum skrímsla heimi þar sem fjölbreytt skrímsli búa í sátt og sæti. Í hverjum þætti kynnumst við nýju skrímsli sem býr yfir vægast sagt sérstökum eiginleikum. Kíkjum við og sjáum hvað setur, kannski við getum kynnst þeim aðeins betur.