Þáttur 1 af 5
Á 20. öld snerist líf bæjarbúa á Akranesi um knattspyrnu og árangur ÍA var hluti af sjálfsmynd þeirra. Samfélagið tók því illa þegar karlaliðið féll niður um deild árið 1990. Tekið…
Árið 1996 þótti lið ÍA ekki vel mannað á sama tíma og höfuðandstæðingarnir í KR voru sterkari en nokkru sinni. ÍA mætti KR í lokaumferð. Uppgjör var óumflýjanlegt og úr varð stærsti leikur í sögu Íslandsmótsins.

Heimildarþættir um lið ÍA sem vann einstakt afrek í íslenskri knattspyrnusögu þegar það varð Íslandsmeistari karla fimm ár í röð á árunum 1992-1996. Í þáttunum fara þjálfarar, leikmenn, andstæðingar, stjórnarmenn, stuðningsfólk og fjölmiðlafólk yfir þetta tímabil.