Með okkar augum

Þáttur 2 af 6

Í þessum þætti tökum við viðtal við Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóra. Við fáum smakka á því besta af borðum kokkalandsliðs Íslands og spókum okkur í einum elsta kirkjugarði landsins. Við sýnum frá opnun sýningar fatlaðra listamanna á Samúelssafni í Selárdal á Vestfjörðum og tökum sporin með djassballettskóla Báru.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

26. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Með okkar augum

Sextánda þáttaröð þessara margverðlaunuðu þátta sem vakið hafa athygli fyrir nýstárleg og frumleg efnistök. Fólk með þroskahömlun vinnur þættina með fagfólki í sjónvarpsgerð og miðlar þannig fjölbreytileika íslensks samfélags. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.

Þættir

,