
Lögregluvald
Uniformen
Ný dönsk glæpaþáttaröð. Þegar lögreglunemi skýtur ungan mann við handtöku vakna upp spurningar um valdbeitingu og þjálfun lögreglunnar. Þrýstingur á nýjan skólastjóra lögregluskólans eykst og bæði nemendur og starfsfólk þurfa að horfast í augu við þá miklu ábyrgð sem fylgir því að klæðast einkennisbúningi lögreglunnar. Aðalhlutverk: Marco Ilsø, Clara Rosager og Lene Maria Christensen. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.