Landinn 14. desember 2025
Í Landanum í kvöld pælum við í sófum, hittum lækni í Vestmannaeyjum sem býr yfir einstakri talnagáfu, kíkjum í Valhöll á Eskifirði og búum til Tiktok myndbönd með samfélagsmiðlastjörnum…

Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Amanda Guðrún Bjarnadóttir og Andri Freyr Viðarsson. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Elvar Örn Egilsson, Hjalti Stefánsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson og Björgvin Kolbeinsson.