Kveikur

Leyft öllum aldurshópum

Slæmur aðbúnaður aldraðra. Tónlistarmaðurinn Prins Póló.

Í þrjátíu ár hefur verið fjallað um fráflæðisvanda Landspítalans en minna horft til fólksins sem lendir á hrakhólum. Hefur eitthvað breyst á þessum þrjátíu árum? Og hvernig stendur á því að veikt, gamalt fólk nýtur ekki fullra mannréttinda? Í þættinum verður sjónum beint að öldruðu fólki og aðbúnaði þeirra.

Í seinni hluta þáttarins verður farið inn í hinn óvenjulega skapandi hugarheim Svavars Péturs Eysteinssonar, sem er með ólæknandi krabbamein á fjórða stigi, og hversdagsleikinn dýrkaður með hliðarsjálfi hans, Prins Póló.

Birt
Aðgengilegt til
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kveikur

Kveikur er fréttaskýringaþáttur sem sendur er út hálfsmánaðarlega. Þátturinn er í anda klassískra fréttaskýringaþátta með áherslu á rannsóknarblaðamennsku.

Ritstjóri er Þóra Arnórsdóttir en ritstjórnina skipa Ingólfur Bjarni Sigfússon, Brynja Þorgeirsdóttir og Tryggvi Aðalbjörnsson. Dagskrárgerð: Arnar Þórisson, Ingvar Haukur Guðmundsson og Árni Þór Theodórsson.

Þættir

,