Kiljan

Þáttur 14 af 24

Við fjöllum um tvær glænýjar skáldsögur í Kilju vikunnar. Þetta rauða, það er ástin er eftir Rögnu Sigurðardóttir og segir frá ungri listakonu sem fer til náms í París á árunum upp úr 1950. Eitt satt orð er spennusaga eftir Snæbjörn Arngrímsson ? segja lygar séu þema í henni. Við förum í Skagafjörð og hittum Hjalta Pálsson sem hefur unnið gríðarlegt þrekvirki, skrásetningu Byggðasögu Skagafjarðar í tíu bindum. Kristín Svava Tómasdóttir segir okkur frá nýrri bók sinni þar sem er rakin saga Farsóttar, spítala sem var reistur í Þingholtsstræti og gegndi margvíslegu hlutverki. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um þrjár bækur: Aðgát og örlyndi eftir Jane Austen, Heiminn eins og hann er eftir Stefán Jón Hafstein og Staðinn eftir nýja Nóbelsverðlaunahafann, Annie Enraux.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

12. okt. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kiljan

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.

Þættir

,