
Kennarinn II
Belfer II
Í annarri þáttaröð þessara pólsku spennuþátta er menntaskólakennarinn Pawel Zawadzki fenginn til starfa í menntaskóla í Wroclaw eftir hvarf þriggja nemenda. Þegar nemendurnir mæta skyndilega aftur í skólann með grunsamlegar útskýringar á hvar þau voru þarf Pawel að komast að sannleikanum. Aðalhlutverk: Maciej Stuhr, Katarzyna Dabrowska og Paulina Szostak. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.