Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

02.11.2015

Hlutdeild almenningssamgangna á að tvöfaldast á næstu sjö árum og þrefaldast fyrir árið 2040 samkvæmt nýsamþykktu svæðisskipulagi fyrir höfuðborgarsvæðið. Töluverð umræða hefur verið um einhvers konar sporvagnakerfi eða hraðvagna sem myndu gera fleirum kleift að nýta sér almenningssamgöngur. Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu vinna nú að því hörðum höndum að gera þetta mögulegt og hafa meðal annars sótt ráðgjöf til Jarrett Walker, sem hefur sérhæft sig í almenningssamgöngukerfum, ekki síst í smærri borgum eins og Reykjavík. Hann efast ekki um að þetta sé mögulegt. En hver er þá lykillinn?

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra ætlar að svara þeim spurningum sem enn hanga í loftinu eftir umfjöllun okkar síðastliðinn fimmtudag um aldraða konu sem fær hvorki ferðaþjónustu frá sveitarfélaginu, né bifreiðastyrk.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kastljós

Beittur, fréttatengdur þáttur um málefni líðandi stundar, menningu og dægurmál hvers konar. Umsjónarmenn: Þóra Arnórsdóttir, Helgi Seljan, Helga Arnardóttir, Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson og Halla Oddný Magnúsdóttir.

Þættir

,