Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 12. júní 2026

Kona sem er ákærð fyrir bana dóttur sinni á hóteli í miðborg Reykjavíkur segir það hafa verið gert með hennar samþykki. Aðalmeðferð í málinu hófst í morgun.

Samkomulag milli Bandaríkjanna og Írans um stríðslok gæti náðst fyrir G7-fundinn á mánudag, sögn bandarískra fjölmiðla. Íranski ríkisfjölmiðillinn hefur birt drög samkomulagi þar sem flestar kröfur Írana virðast uppfylltar.

Grindvíkingar eru saman komnir á Austurvelli. Þeir vilja vekja athygli á óvissu um framtíð Grindavíkur.

Veiðiheimildir ýsu dragast saman um 20% á næsta fiskveiðiári, samkvæmt ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Þorskveiðiheimildir standa í stað en loðnuveiði getur náð fyrir hæðum.

Á næstu vikum ákveður stýrihópur um hagræðingu í borgarkerfinu hvaða verkefni og stöðugildi verða lögð niður í Ráðhúsinu. Formaður hópsins segir gengið verði hratt til verks.

Eignir Elons Musk eru metnar á þúsund milljarða bandaríkjadala. Hann samkvæmt því ríkastur allra.

Hiti gæti náð tuttugu stigum á landinu í dag.

Suður-Kórea vann Tékkland 2-1 á heimsmeistaramóti karla í fótbolta í nótt.

Birt

12. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,