Framkvæmdastjóri NATO heitir því að verja hvern þumlung bandalagsins. Rússneskur dróni lenti á íbúðarhúsi í Rúmeníu í nótt.
Áform um fækkun lögregluembætta leggjast þokkalega í lögreglumenn á Austurlandi. Dómsmálaráðherra segir að hvorki lögreglumönnum né lögreglustöðvum á landinu verði fækkað.
Réttargæslumaður konu, sem var beitt grófu kynferðisofbeldi í æsku, segir sigur í Landsrétti í vikunni hafa verið langþráðan. Hann er ósáttur við að gerandinn, sem er bróðir konunnar, hafi hlotið skilorðsbundna refsingu.
Landskjörstjórn mun útbúa kynningarefni fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. FRamkvæmmdastjóri segir það þurfa að endurspegla ríkjandi sjónarmið á hlutlausan hátt.
Héraðsdómur Reykjaness hefur vísað frá meiðyrðamáli foreldra fyrrum flugmanns gegn Icelandair. Lögmaður þeirra segir málinu hvergi lokið.
Hálka, snjóþekja eða krapi er á fjallvegum austanlands og gul viðvörun í gildi fram á kvöld. Bændur í kornrækt segjast vongóðir um að uppskeran sleppi, hretið sé ekki eins slæmt og í fyrra.