Lögregluembættum verður fækkað um helming gangi áform dómsmálaráðherra eftir. Markmiðið er að styrkja lögreglu á landsvísu og bæta skilvirkni.
Verðbólga var 5,1 prósent í maí og stendur því sem næst í stað frá því í apríl.
Maður, sem var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn stúlku á leikskólanum Múlaborg, er haldinn barnagirnd að mati dómkvaddra matsmanna.
Í dag skýrist á Alþingi hvort þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við Evrópusambandið verður 29. ágúst.
Kínverska netverslunin Temu hefur verið sektuð um þrjátíu milljarða króna fyrir að koma ekki veg fyrir að ólöglegar og hættulegar vörur séu seldar á vegum hennar í Evrópusambandinu. Unnið er að því að innleiða reglugerð um netsölur hér á landi.
Gular viðvaranir taka gildi norðan lands og austan um hádegið. Búast má við snjókomu niður í byggð og bændur eru hvattir til að huga að fé.
Meirihluti hefur verið myndaður í Ísafjarðarbæ. Framsókn og óháðir og Viðreisn gengu í morgun frá samkomulagi um samstarf.
Formaður Kennarasambandsins segir ekki lykilatriði hvort einkunnir eru gefnar í tölum eða bókstöfum heldur að þær þjóni börnum. Breyting á námsmati úr tölustöfum yfir í bókstafi er í samráðsgátt stjórnvalda.
Sigvaldi Guðjónsson, Benedikt Gunnar Óskarsson og Sigurjón Guðmundsson urðu í gær Noregsmeistarar í handbolta. Lið þeirra, Kolstad, hafði betur gegn Drammen í úrslitaeinvíginu.