
Gettu betur 2002
Spurningakeppni framhaldsskólanna. Spyrill er Logi Bergmann Eiðsson. Eggert Þór Bernharðsson er dómari og höfundur spurninga. Stigavörður er Þóra Arnórsdóttir. Andrés Indriðason annast dagskrárgerð.
Lið Fjölbrautarskólans í Garðabæ og Menntaskólans í Reykjavík etja kappi. Keppendur í liði FG: Einir Guðlaugsson, Orri Hafsteinsson, Skúli Gestsson. Keppendur í liði MR: Atli Freyr Steinþórsson, Oddur Ástráðsson, Snæbjörn Guðmundsson. Rætt er við Tómas F. Aðalsteinsson forseta nemendafélags Fjölbrautaskólans í Garðabæ og Bolla Thoroddsen, inspector scholae í MR.
Atriði Fjölbrautaskólans í Garðabæ: Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir syngur lag úr Hárinu, Allir geta sært. Atriði Menntaskólans í Reykjavík: Margrét Erla Maack syngur. Frank Cassata leikur með á gítar. Bob Dylan lag, You belong to me.

Spurningakeppni framhaldsskólanna. Spyrill er Logi Bergmann Eiðsson. Eggert Þór Bernharðsson er dómari og höfundur spurninga. Stigavörður er Þóra Arnórsdóttir. Andrés Indriðason annast dagskrárgerð.