Vorið er komið
Myndin sýnir líf og störf í íslenskri sveit að vori þegar lífið kviknar á ný eftir veturinn. Torf er skorið, kindur bera, fuglar hreiðra um sig og ungviðið fyllir svanga maga. Á sveitabænum…
Myndin sýnir líf og störf í íslenskri sveit að vori þegar lífið kviknar á ný eftir veturinn. Torf er skorið, kindur bera, fuglar hreiðra um sig og ungviðið fyllir svanga maga. Á sveitabænum eru líka hestar, hundar og kettir. Sýnt er frá búleik barna með leggi og skeljar og fylgst með ungum smala sem gætir ánna og rekur þær heim í sel þar sem þær eru mjólkaðar.

Myndefni frá Kvikmyndasafni Íslands.