Grikk eða gott
Eftir að Eddi strútapabbi hræðir kráku, setur hún á sig hræðilegan graskershaus til þess að hræða hann til baka. Eddi strútapabbi heldur að þetta sé skrímsli og verður dauðhræddur!
Eddi strútapabbi vill að allir krakkarnir bursti tennurnar svo þær verði ekki grænar, en sumir vilja frekar fá sér sleikjó!

Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.